Þriggja manna enn leitað - skopmyndateiknarar styðja fallna félaga

Allt tiltækt lögreglulið í París leitar nú þriggja manna í tengslum við skot­árásina á ritstjórn skop­mynda­ritsins Charlie Hebdo, á ellefta tímanum í París í morgun. Tíu starfs­menn ritsins féllu, þar á meðal fjórir helstu skopmynda­teiknarar ritsins og aðal­ritstjórinn. Tveir lögreglu­menn voru skotnir til baka í árásinni, áður en byssu­mennirnir flúðu af vettvangi á bifreið. Þeir skildu bifreiðina eftir um tveimur kíló­metrum frá ritstjórnar­skrifstofum Charlie Hebdo, í 11. hverfinu, og síðan hefur lögreglan ekki náð til þeirra, en hún verst frétta af leitinni af mönnunum.

Í París er nú í gildi hættu­ástand, og hefur Francois Hollande forseti þegar lýst því yfir að allt verði gert til að tryggja öryggi borg­aranna og ná mönnunum sem ábyrgð bera á skot­árásinni.

Skopmynda­teiknarar um allan heim hafa brugðist við árásunum með því að teikna áhrifa­miklar myndir, til stuðnings tjáningar­frelsinu sem ritið hefur alltaf haft í hávegum.
Á meðal þeirra sem teiknuðu mynd var David Pope, skopmynda­teiknari Canberra Times í Ástralíu.

Can't sleep tonight, thoughts with my French cartooning colleagues, their families and loved ones #CharlieHebdo pic.twitter.com/LqIMRCHPgK

— David Pope (@davpope) January 7, 2015

Carlos Latuff, þekktur teiknari.

Please, RT! #CharlieHebdo attack has another victim! Via @MiddleEastMnt #ParisShooting pic.twitter.com/PNesB88POL — Carlos Latuff (@LatuffCartoons) January 7, 2015

Spænskir skopmynda­teiknarar sameinuðu krafta sína í áhrifa­mikilli mynd, þar sem skila­boðin eru þau, að penninn sé áhrifa­meiri en byssan.

İspanyol karikatürcülerin katliama tepki için paylaştıkları fotoğraf: "Bu da bizim silahımız" #CharlieHebdo pic.twitter.com/UqGVHAIjAT

— engin yıldız (@sicevis) January 7, 2015

Og hjá II Mattinale voru skila­boðin tákræn.

La #vignetta del #Mattinale di oggi! #CharlieHebdo @forza_italia @simonebaldelli pic.twitter.com/XzxQFjC62q

— Il Mattinale (@IlMattinale) January 7, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár