Styrmir kosinn formaður Félags sjálfstæðismanna

Tilgangur nýs félags er að „efla samhug sjálfstæðis­manna um full­veldið með því að halda til haga og verja, með fræðslu og upplýsingu, þau grunn­gildi Sjálfstæðis­flokksins um frjálsa og fullvalda þjóð.“

Styrmir Gunnarsson
Styrmir Gunn­ars­son Mynd: Hringbraut

Félag sjálfstæðis­manna var stofnað í gær um fullveldismál í Valhöll í Reykjavík. Stofn­fundinn sóttu um 80 manns. Styrmir Gunnarsson, fyrr­verandi ritstjóri Morgun­blaðsins, var kosinn formaður hins nýja félags með öllum greiddum atkvæðum.

Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu frá félaginu.

Tilgangur félagsins er að „efla samhug sjálfstæðis­manna um full­veldið með því að halda til haga og verja, með fræðslu og upplýsingu, þau grunn­gildi Sjálfstæðis­flokksins um frjálsa og fullvalda þjóð,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að margir sjálfstæðis­menn telji fulla þörf á aukinni umræðu og fræðslu um fullveldismál íslensku þjóðarinnar ekki síst í ljósi þeirra deilu sem varð um innleiðingu 3. orkupakka ESB í íslensk lög.

„Eftir þá óeiningu sem orku­pakkamálið olli bæði í Sjálfstæðis­flokknum og þjóð­félaginu öllu telja félags­menn nauðsynlegt að ræða framtíðar­stöðu mála­flokksins og hversu langt eigi að ganga í því að innleiða hér orku­stefnu Evrópu­sambandsins.“

Á fundinum fluttu stutt ávörp þeir Jón Gunnarsson ritari Sjálfstæðis­flokksins og þingmaður, Ásmundur Friðriksson þingmaður, Viðar Guðjohnsen jr, lyfja­fræðingur, Jónas Elíasson prófessor og Styrmir Gunnarsson fyrr­verandi ritstjóri, en hann var einróma kjörinn formaður félagsins, eins og áður segir. Í lok fundarins flutti Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson jóla­hugvekju og fundar­menn sungu nokkur jólalög undir stjórn Eyþórs Arnalds.

Þá kemur enn fremur fram hjá félaginu að eitt af markmiðum með stofnun þess sé að halda til haga, með fræðslu og upplýsingu, merkum þáttum í sögu Sjálfstæðis­flokksins sem tengjast fullveldis­baráttu þjóðarinnar, svo sem stofnun lýðveldis, varnar­samstarfi frjálsra þjóða og barátt­unni um yfirráð yfir auðlindum hafsins. „Slík fræðsla er afar mikilvæg, ekki síst fyrir ungt fólk. Þá er ætlunin að efna til opinna skoðana­skipta um aðra helstu auðlind þjóðarinnar, sem er orka fall­vatnanna og jarð­varmans. Að fengnu samþykki Miðstjórnar flokksins fyrir þessari félags­stofnun mun verða efnt til málþings og fundar­halda þar sem þetta málefni verður rætt frá öllum hliðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár