Seðlabankastjóri segist telja bækurnar „ákaflega ólíkar“

Ásgeir Jónsson seðla­bankastjóri hefur tjáð sig frekar um ásakanir á hendur honum um ritstuld. Hann segist nú hafa lesið bók Bergsveins Birgis­sonar og telur hana ákaflega ólíka sinni eigin, hvað varðar „nálgun, umfjöllun og niður­stöður.“

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri Mynd: Bára Huld Beck

Ásgeir Jónsson seðla­bankastjóri hefur í færslu á Facebook brugðist frekar við ásökunum um ritstuld, sem rithöfundurinn og fræði­maðurinn Berg­sveinn Birgisson setti fram á hendur honum vegna bókarinnar Eyjan hans Ingólfs, sem Ásgeir gaf nýlega út. Hann segir að síðustu dagar hafi verið „sérstakir“ hjá sér þar sem hann hafi „verið þjóf­kenndur í fyrsta skipti á ævinni.“

Ásgeir hafði áður sent frá sér stutta yfir­lýsingu, þar sem hann sagðist ekki hafa lesið bók Bergsveins, Leitin að að svarta víkingnum, og því ekki nýtt hana við ritun sinnar eigin bókar, en Berg­sveinn fullyrti í aðsendri grein á Vísi fyrr í vikunni að Ásgeir hefði ljóslega stuðst við hugverk hans við ritun Eyjunnar hans Ingólfs og gert að sínu það sem honum ekki bar.

Seðla­bankastjóri segir í dag að hann fái ekki betur séð en að bækurnar tvær séu „ákaflega ólíkar bæði hvað varðar nálgun, umfjöllun og niður­stöður“ og að hann haldi að öllum verði það ljóst sem báðar lesi. Berg­sveinn hefur lagt málið fyrir bæði siðanefnd Háskóla Íslands og nefnd um vandaða starfs­hætti í vísindum.

Boðar frekari svör síðar

Í færslu sinni á Facebook í dag segir Ásgeir að hann muni „fjalla ítarlega um málið síðar“ en vilji þó nefna nokkra hluti nú þegar, meðal annars það að eftir að hafa lesið bók Bergsveins telji hann hana mjög skemmtilega og upplýsandi um margt – „frábært framtak af hans hálfu.“

Einnig segir seðla­bankastjóri að hann sé „í grundvallar­atriðum ósammála niður­stöðum“ Bergsveins í bók sinni, sem krist­allist í því að land­náms­maðurinn Geirmundur heljar­skinn hafi markað upphaf íslensku þjóðarinnar.

„Ég álít að Geirmundur hafi skipt litlu sem engu máli fyrir landnám Íslands heildar­samhengi. Ég hef enga trú á því að hann hafi byggt upp viðskipta­veldi með sölu á rostungs­afurðum þó hann hafi án efa látið þræla sína stunda rostungs­veiðar. Eins og ég les Landnámu þá kom hann hingað til lands á efri árum sem hálf­gerður flótta­maður. Ég álít heldur ekki að rostungs­veiðar hafi skipt miklu máli eftir að landnám Íslands hófst fyrir alvöru þó þær kunni að hafa skapað hvata fyrir fyrstu Íslands­ferðunum,“ segir Ásgeir í færslu sinni.

Seðla­bankastjóri segir í færslu sinni að sín nýútkomna bók sé ekki fræðirit og hafi aldrei verið kynnt sem slík – og sé til að mynda ekki með heimilda­skrá. „Ég get þeirra heimilda sem ég nota í neðan­málsgreinum en þessa bók má alls ekki líta á sem tæmandi fræðirit um landnám Íslands. Sagn­fræðingar hafa ágætis orð fyrir bækur af þessu tagi sem „leikmanns­þankar“. Þessi bók er sprottin upp af einlægum söguáhuga mínum,“ skrifar Ásgeir.

Hann segir að honum langi til að fylgja bókinni eftir með því að rita fræði­greinar sem tengist hagsögu Íslands og það hafi verið þær hugmyndir sem honum langaði til að kynna á málstofu í Háskóla Íslands – sem ekki fór fram í gær eins og stefnt hafði verið að.

Ásgeir segir sömuleiðis að hann sé ekki að slá eign sinni á eitt eða neitt í Íslandsögunni með því að gefa út bókina. „Í formála segir aðeins: „Ég vona að þessi veikburða tilraun af minni hálfu verði lesandanum til einhvers fróðleiks og skemmtunar“. Í eftirmála segir aðeins að ég vonist til þess að bókin verði „upphaf að nýrri umræðu landnám Íslands“. Svo má segja að sú ósk hafi sannarlega ræst þó ósinn sé alls ekki eins og uppsprettuna dreymdi,“ skrifar seðla­bankastjóri.

Ánægður ef bókin stendur undir framleiðslukostnaði

Ásgeir segist líka vilja taka það fram að hann vonist ekki eftir „neinum efnalegum ávinningi með ritun þessarar bókar“ og hann verði „aðeins ánægður ef bókin stendur undir framleiðslu­kostnaði.“

„Eyjan hans Ingólfs er því aðeins veikburða tilraun af minni hálfu til þess að setja fram tilgátu um hvernig að þjóð­skipulag myndaðist á Íslandi. Rostungs­veiðar eru algert auka­atriði í þeirri frásögn. Ég fæ ekki betur séð en að að bækur okkar Bergsveins séu ákaflega ólíkar bæði hvað varðar nálgun, umfjöllun og niður­stöður. Ég held að öllum verði það ljóst sem lesa báðar bækurnar,“ segir Ásgeir í færslu sinni.

Heimskulegt af seðlabankastóra að reyna ritstuld

Í lokin tekur hann svo fram að hann hafi „aldrei áður verið vændur um stuld.“

„Enda væri það ákaflega heimskulegt stöðu minnar vegna að reyna slíkar kúnstir með bók líkt og Leitina að Svarta víkingnum sem var metsölubók á Íslandi. Ég hef heldur engan áhuga á því að lýsa yfir eignar­rétti á einu eða neinu sem tengist Landnámu. Þá bók á þjóðin öll saman,“ skrifar seðla­bankastjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár