Stærsta skráning ársins þegar japanska ríkið seldi eignarhluti í fjármálafyrirtæki

Hlutabréf í japanska félaginu Japan Post Holding, sem til þessa hefur verið alfarið í eigu japanska ríkisins, voru tekin til viðskipta í kaup­höllinni í Japan í dag, og hækkaði gengi bréfanna um 26 prósent frá skráningar­gengi. Fjár­festar sýndu þessari skráningu mikinn áhuga og náði japanska ríkið sér samtals í tæplega tólf milljarða Bandaríkja­dala, jafnvirði 1.700 milljarða króna, með skráningu á markað.

Skráningin á Japan Post Holding er sú stærsta frá því kínverski vefverslunar­risinn Alibaba var skráður á markað í Banda­ríkjunum, í september í fyrra.

Japanska ríkið seldi um ellefu prósent hlut í bankanum Japan Post Bank og tryggingar­félaginu Japan Post Insurance, en þessi félög eru dóttur­félög Japan Post Holding.

Með þessari sölu og skráningu, hyggjast japönsk stjórn­völd fjármagna áætlun sem meðal annars miðar að því ljúka endur­reisnar­starfi vegna eyði­leggingar sem jarð­skjálfti og flóð­bylgja í kjölfarið skildu eftir sig árið 2011.

Sala á eignar­hlutum í Japan Post Holding, hófst formlega fyrir um áratug, en þá voru smáir eignar­hlutir seldir til fagfjárfesta. Félagið heldur meðal annars um stóran hlut af húsnæðis­lánum Japans, og hefur ríkis­stjórn Shinzo Abe, forsætis­ráðherra, það á stefnu­skrá sinni að selja hluti ríkisins í félaginu á næstu árum, eftir því sem aðstæður leyfa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár