Sala Brauðs & Co nær tvöfaldast

Sala í bakaríum Brauðs & co nær tvöfaldaðist frá fyrra ári og nám á síðasta ári 408 milljónum króna. Reka nú fimm bakarí og verslanir á höfuð­borgar­svæðinu.

Sala í bakaríum Brauðs & co nær tvöfaldaðist frá fyrra ári og nám á síðasta ári 408 milljónum króna. Áður var hún 207 milljónir. Hagnaður bakarí­anna var um 24,7 milljónir í fyrra og dróst saman um 2,4 milljónir á milli ára. Þetta má sjá í ársreikningi félagsins en Frétta­blaðið greindi fyrst frá.

Brauð og co ehf. rekur fimm bakarí á höfuð­borgar­svæðinu. Fyrsta verslunin var opnuð á Frakka­stíg í byrjun árs 2016. Þá eru hinar verslanirnar staðesttar í Mathöllinni við Hlemm og í Fákafeni, auk þess sem á þessu áru opnuðu tvö ný Brauð & co bakarí annars vegar á Melhaga og hins vegar við Akrabraut í Garðabæ.

Rekstrar­gjöld félagsins voru um 379 milljónir í fyrra borið saman við 173 milljónir árið áður. Eignir námu tæplega 139 milljónum í lok síðasta árs saman­borið við 90 milljónir í lok árs 2016. Eigið fé félagsins var um 82 milljónir í lok árs 2017 og námu skuldirnar á sama tíma um 57 milljónum.

Stærsti hluthafi Brauðs og co ehf. er Eyja fjár­festinga­félag, í eigu Birgis Þórs Bieltvedt og Eyglóar Bjarkar Kjartans­dóttur, með 51 prósents hlut. Lúkas ehf. á 31 prósents hlut í félaginu og Nói Nóra ehf. 18 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár