„Af hverju fæ ég ekki að tala, Þýskaland?“

Þýska þingið samþykkti ályktun um að nota skyldi umdeilda skil­grein­ingu IHRA-samtak­anna þegar úrskurðað væri um hvað teldist til gyðinga­haturs. Nú er svo komið að listamenn og akademíkerar virðast þurfa að hugsa sig tvisvar um áður en þeir sýna Palestínu stuðning. Hvað er að gerast í Þýska­landi? spyr Salvör Gullbrá Þórarins­dóttir.

Þjóðarmorð
Þjóð­ar­morð For­stöðu­maður Neue Nationalgalerie, Klaus Biesenbach, svarar ásök­unum Goldin eftir ræðu hennar í Neue Nationalgalerie. Fyrir utan safnið standa aktí­vistar með borða sem á stendur „Staats­ra­i­son: Þjóð­ar­morð“, (Staats­ra­i­son er hug­tak sem Angela Merkel not­aði til að segja Ísrael hluta af til­vistar­rétt­læt­ingu Þýska­lands) . Starfs­fólk Neue Nationalgalerie hefur tekið sér stöðu til að fela með lík­ömum sínum orðið Genozid, eða þjóð­ar­morð.

Nan Goldin, listakona sem síðustu áratugi hefur verið heims­þekkt fyrir að fanga það allra mannlegasta með ljós­myndum sínum, opnaði yfirlits­sýningu í Neue Nationalgalerie-safninu í Berlín í október.  Við opnun sýningarinnar hélt Goldin harðorða ræðu, þar sem hún gagnrýndi ritskoðun á röddum lista­fólks í Þýska­landi:

„Af hverju er ég að tala við ykkur, Þýskaland?
Því tungur hafa verið bundnar,
kyrktar af ríkis­stjórninni, lögreglunni og menningarlegum ofsóknum. [Berlín] er borg sem við [listamenn] litum eitt sinn á sem athvarf. En síðan 7. október hefur meira en 180 lista­mönnum, rithöfundum og kennurum verið slaufað, sumum þeirra fyrir eitthvað jafn hversdagslegt og læk á Instagram. Mörg þeirra eru palestínsk, 20% þeirra eru gyðingar. Af hverju er ég að tala hér? Ég ákvað að nota þessa sýningu sem vettvang fyrir siðferðisreiði mína yfir þjóðar­morðinu í Gaza og Líbanon. Ég lít á sýninguna mína hér sem prófstein: Ef listakona í minni stöðu fær að tjá pólitískar skoðanir sínar án þess að það sé þaggað niður, vona ég að það ryðji brautina fyrir aðra listamenn til að tjá sig án ritskoðunar. Ég vona að það verði útkoman. Af hverju fæ ég ekki að tala, Þýskaland?“

Þetta á ekki eftir að enda vel

Hvað er að gerast í Þýskalandi?

En hvaðan koma ásakanir ljós­myndarans heims­þekkta og hvað er eiginlega að gerast í Þýska­landi? Þau sem eru í menningar- og lista­geiranum þekkja hvernig lista­stofnanir keppast við að sanna samfélagslegt gildi sitt með því að sýningar þeirra taki fyrir nýlendu­stefnu, rasisma, kynja­hlutverk og svo framvegis. Það þykir því mörgum lista­mönnum skjóta skökku við að lista­stofnanir ritskoði listafólk sem styður frelsis­baráttu Palestínu berum orðum, eða með lækum á Instagram, eins og Goldin orðaði það. En síðan þýska þingið samþykkti ályktun um að nota skyldi skilgreiningu IHRA-samtak­anna (e. Alþjóð­legu samtökin um minningu helfararinnar) þegar úrskurðað væri um hvað teldist til gyðinga­haturs var öll gagnrýni á Ísraels­ríki sett undir þann hatt. Til að gefa dæmi um hversu víð skilgreining samtak­anna IHRA á gyðinga­hatri er má nefna að samtökin telja skýrslu stærstu mannúðar­samtaka heims, Amnesty International, um að Ísrael sé aðskilnaðar­ríki[1] til gyðinga­haturs.

Áhrif á fjölmarga listamenn og akademíkera

Meðal þess fyrsta sem ályktun þýska þingsins gaf af sér var brott­rekstur Þjóðverja af kongólskum uppruna úr starfi sem umsjónar­maður barna­sjónvarps­þáttar, fyrir þátttöku hans í umhverfis­vænni hátíð til styrktar börnum á Vestur­bakkanum í Palestínu. Síðan þá hefur ályktunin haft áhrif á fjölmarga listamenn og akademíkera: Lista­konan og goðsögnin Laurie Anderson missti prófessors­stöðu sína við Folkwang-lista­háskólann í Essen fyrir að skrifa undir opið bréf lista­fólks gegn aðskilnaðar­stefnu Ísraels, palestínska skáldið Adania Shibli var svipt verðlauna­afhendingu vegna bókar sinnar á Bóka­hátíðinni í Frankfurt, að því er virðist vegna þjóðernis hennar. Lista­miðstöðin Oyoun neyddist til að loka dyrum sínum eftir að þau misstu allar styrk­veitingar í kjölfar þess að þau héldu viðburð undir nafninu „Raddir gyðinga fyrir réttlátum friði í Mið-Austur­löndum“. Þetta eru allt dæmi frá síðastliðnu ári, en þýska þingið staðfesti nú í nóvember ályktun sína um að ríkið myndi ekki styrkja samtök eða verkefni sem kalla eftir sniðgöngu á Ísrael eða styðja sniðgöngu­hreyfinguna, eða ógna tilveru­rétti Ísraels­ríkis. 

Svo virðist því sem aflýsingar á lista­sýningum, tónleikum og leik­sýningum, boðum til lista­manna, veitingar á bóka­verðlaunum, verði enn undir smásjá víðrar skilgreiningar á hvað geti flokkast sem hatur.   

Meint „innflutt“ gyðingahatur

Nan Goldin benti einnig á í ræðu sinni það sem margir aðrir gagn­rýnendur stefnu þýskra stjórn­valda hafa gagnrýnt varðandi ályktanir þingsins, sem er að skilgreining Þýska­lands á gyðinga­hatri skekki baráttuna gegn raun­verulegu gyðinga­hatri, færi fókusinn frá haturs­glæpum nýnasista yfir á mótmæli gegn því sem þau kalla „innflutt“ gyðinga­hatur. Þýskaland telur sumsé gyðinga­hatrið innflutt en ómögulega geta verið lengur að finna í þeirra eigin borgurum, jafnvel þó rann­sóknir sýni að 80% haturs­glæpa gegn gyðingum séu framdir af öfga-hægri hópum sem aðhyllast hvíta yfirburða­hyggju. 

Meðal gagn­rýnenda ritskoðunar Þjóðverja er Candace Breitz, suður-afrísk listakona af gyðinga­ættum, sem varð fyrir því að hætt var við myndlistar­sýningu hennar vegna þess að hún hefði ekki samþykkt að leggja árás Hamas 7. október 2023 að jöfnu við helförina. Breitz benti í viðtali í kjölfarið á fárán­leika þess að Þýskaland segi nú gyðingum hvað séu rétt og röng viðbrögð við slátrun á þeim sjálfum. Á mótmælum gyðinga fyrir Palestínu þann 10. nóvember 2023 sagði lista­konan jafnframt: „Á sama tíma halda nýnasistar og þjóðernis­sinnar áfram að ganga um götur Þýska­lands með vernd lögreglu, og stuðningur við [hægri] flokkinn AfD heldur áfram að vaxa [...] Hvernig er það mögulegt, vinir, að röddum okkar sem menningar­fólks, lista­manna, rithöfunda, tónlistar­manna, ljóð­skálda, leik­húsfólks, fræði­manna, hugvits­manna – hvernig er það mögulegt að rödd okkar sé talin hættulegri fyrir þetta samfélag en rödd hvítra þjóðernis­sinna og hægri öfga­hreyfinga?“

Hægrið er að taka baráttuna um tjáningar­frelsið upp á sína arma á meðan listamenn, sem eru yfirleitt á vinstri vængnum, virðast ekki vilja taka ekki upp hanskann fyrir listafólk.

Listamenn þurfa að hugsa sig tvisvar um

Þýsk vinkona undir­ritaðrar sótti um styrk fyrir skóla­gjöldum fyrir meistara­námi í sviðs­listum. Henni þótti nokkuð öruggt að fá styrkinn, ekki síst þar sem hún er listakona með nokkuð „pottþétta“ ferilskrá í list­heiminum: hún hefur unnið óslitið frá því hún kláraði grunnnám, vinnur samfélagsleg verkefni með innflytjendum, unglingum og öðrum hópum sem ekki hafa rödd í samfélaginu, ofan á það að vinna sleitu­laust í ólíkum opinberum menningar­stofnunum og vinna einnig að grasrótar­starfi. En styrkinn fékk hún ekki. Það er auðvitað alltaf sjokk að fá ekki styrk, og fyrir því geta verið ólíkar ástæður – þýska námsstyrkja­stofnunin gaf vinkonu minni ekki upp ástæðu, en vinkona mín velti fyrir sér hvort hún hafi gert mistök: Einn meðmælandi hennar er nefnilega listakona sem hefur haft hátt um yfir­standandi árásir Ísraels á Palestínu og Líbanon. „Ég bara hugsaði þetta, það er ekki endilega það – en gæti það verið að mér hafi verið hafnað vegna þess?“ Það er auðvelt að afskrifa áhyggjur vinkonu minnar sem hreina paranoju, en raunin er að flestir listamenn í Þýska­landi þurfa nú að hugsa sig tvisvar um áður en þeir tengja sig eða list sína á nokkurn hátt við málstað Palestínu.

 „Hinn nýi McCarthy-ismi“

Á meðan vopna­sendingar Þýska­lands til Ísraels hafa tífaldast á einu ári, hefur stefna landsins í menningar­málum þróast út í að vera einn armur utan­ríkisstefnu landsins. Vegferð Þýska­lands hefur verið kölluð „hinn nýi McCarthy-ismi“.

Í lista­umhverfi Þýska­lands, þar sem allar lista­stofnanir eru að einhverju leyti ríkis­styrktar, skiptir miklu máli að stjórn­völd standi vörð um tjáningar­frelsi lista­manna. Listafólk í þýska­landi er því margt hrætt við að skrifa undir opin bréf eða deila efni um Palestínu á samfélags­miðlum, því það gæti þýtt að þeir missi lífs­viðurværið.

 Fjölmargar kenningar hafa komið fram um af hverju Þjóð­verjar, þessi þjóð sem virtist hafa gengist við gerenda­stimplinum með auðmýkt eftir seinni heims­styrjöld, þjóðin sem tók minningu helfararinnar og dýfði sér í hana í sektar­kennd sem virtist næstum einkennast af stolti, keppist nú við að þagga niður í lista­mönnum sem segja það sem þeim finnst óþægilegt. Er Þjóð­verjum kannski svo mikið í mun að vera réttir að þeir fara hringinn og verða það sem þeir óttast mest sjálfir?

 Titill yfirlits­sýningar Nan Goldin í Neue Nationalgalerie eru varnaðarorð sem hefðu vel átt heima í kraft­mikilli ræðu hennar: „This will not end well“, eða „Þetta mun ekki enda vel“. Við látum liggja á milli hluta hvort orð hennar reynist hafa spádóms­mátt.



[1] https://www.theguardian.com/news/2023/apr/24/un-ihra-antisemitism-definition-israel-criticism

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Ísrael hefur aldrei verið lýðræðisríki. Í kringum stofnun Ísraelsríkis 1948 hófu síonistar þjóðhreinsanir sínar með því að hrekja af heimlum sínum 750.000 Palestínuaraba. Þeir 15.000 sem ekki hlýddu voru einfaldlega drepnir.

    Þessir atburðir eru tabú í Ísrael og hvergi nefndir í skólum landsins. Það sýnir okkur ágætlega hversu brengluð staðan er.

    Ríki sem stundar þjóðhreinsanir getur með engu móti talist lýðræðisríki. Þjóðhreinsanirnar standa enn svo ekki sé talað um þjóðarmorðið sem síonistar stunda um þessar mundir á Gaza. Ég mæli með lestri eftirfarandi bókar

    Ilan Pappe, The Ethnic Cleansing of Palestine (2007).

    Ilan Pappe er gyðingur sem ólst upp í Ísrael, gengdi þar herþjónustu og lauk svo doktorsprófi í stjórnmálafræði í Oxford. Hann var dósent við háskólann í Haifa frá 1984 til 2006. Hann var rekinn úr því embætti vegna skrifa sinna og hrakinn úr landi og er nú prófessor á Englandi.

    Þá má finna fjölmörg viðtöl við þennan ágæta mann á YouTube með því t.d. að leita að

    "On 1948 | Ilan Pappe | Part I | 2018"

    "On 1948 | Ilan Pappe | Part II | 2018"

    "Ilan Pappé: The Myth of Israel"

    "Ilan Pappe - how he became an Israeli dissident and on why Zionism will fail soon"
    1
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Já, þetta eru sannarlega góð og vel rökstudd orð, en samt bara gnauð upp í vindinn. Það er mörg ógæfan í veröldinni sem þyrfti að hitta englana sína til að finna sjálfa sig. Gagnrýni á Ísrael á sér enga stöðu meðal siðmenntaðra manna. Það er bara þannig og þess vegna geta þeir ekki sem vilja halda fram ábyrgum stjórnmálum í Evrópu og USA tekið þátt í að níðast á eina lögmæta gyðinga heimilinu á plánetunni. Ísrael hýsir milljónir flóttamanna frá arabísku þjóðinni og tekur þá einnig flóttamenn frá Afríku. Sækir flóttamenn þangað sem enginn annar vill og innleiðir svo. Múslima og blökkumenn. Þeir sæta stöðugt árás heimsins fyrir það sama og öll önnur lönd gera í varnarskyni,að verja íbúa landsins með valdi og gefast aldrei upp fyrir hryðjuverkamönnunum. Þeir þáðu land frá UN 1948 og skilgreina land sitt sem heimili gyðinga. Löglega og friðsamlega eftir hryllilegan búsetu tíma í Evrópu og var nánast útrýmt af Evrópu búum. Helvíti er Disney land undir mjúku teppi miðað víð Auschwitz. Það vitna skýrslur nasista um. Mannkyn þekkir ekki baráttuna sem gyðingur þurfti að heyja til að sleppa lifandi undan evrópsku þjóðunum á tuttugustu öld. Það er ógæfan sem nú birtist því sem ræðst gegn gyðingum nú út um allan heim.
    -10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár