Árið 2014 var heitasta árið frá því mælingar hófust á jörðinni

Árið 2014 var heitasta árið á jörðinni frá því mælingar hófust, en fyrra metið var árið 2010. Þetta staðfestu vísinda­menn í dag, sem vinna úr samræmdum gögnum um hitastig víðs vegar á jörðinni, samkvæmt fréttum The New York Times.

Tíu heitustu árin á jörðinni hafa öll mælst eftir árið 1997, en þrjú heitustu árin eru 2005, 2010 og 2014.

Samkvæmt mati vísinda­mannanna sem New York Times vitnar til, staðfesta þessar upplýsingar um hitastig á jörðinni, að hlýnun jarðar sé alls ekki úr sögunni, eins og efasemda­menn hafa stundum sagt, heldur þvert á móti sé þetta „alvarleg áfram­haldandi þróun“ sem þurfi að taka alvarlega. Hlýnun jarðar af manna­völdum sé aðkall­andi vandi sem steðji lífi á jörðinni í hættu, ef ekki sé brugðist við af meiri krafti en þegar hefur verið gert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár