Eitt versta dæmi um valdníðslu í íslensku stjórnkerfi í lengri tíma

Þing­maður og for­maður Við­reisnar gagn­rýnir Lilju Alfreðs­dóttur harð­lega í færslu á Facebook og segir aðför þáver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ans gegn ein­stak­lingi, konu sem leit­aði réttar síns, for­dæma­lausa.

Þorgerður gagnrýnir Lilju harðlega í færslu á Facebook.
Þor­gerður gagn­rýnir Lilju harð­lega í færslu á Facebook.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, þing­maður og for­maður Við­reisnar, segir aðför Lilju Alfreðs­dóttur, þáver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, að Hafdísi Helgu Ólafs­dóttur, sem sótt­ist eftir starfi ráðu­neyt­is­stjóra í mennta­mála­ráðu­neyt­inu þegar það var aug­lýst árið 2019, eitt versta dæmi um vald­níðslu í íslensku stjórn­kerfi í langan tíma. Lilja hafi verið „rass­skellt“ fyrir Hér­aðs­dómi. Þá segir Þor­gerður umræður um van­hæfi hafa farið fram við minna til­efni.

Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu 2020 að Lilja hefði brotið jafn­rétt­islög þegar hún skip­aði Pál Magn­ús­son í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra. Lilja ákvað að stefna kær­and­anum, Hafdísi Helgu, per­sónu­lega í nafni íslenska rík­is­ins til að fá úrskurð­inum hnekkt, tap­aði fyrir hér­aðs­dómi og ákvað að áfrýja til Lands­réttar. Þar átti að taka málið fyrir í lok febr­úar en af því verður ekki. Ásmundur Einar Daðason, sem tók við mála­rekstr­inum, tók þá ákvörðun að semja um mála­lok og greiða Hafdísi Helgu miska­bætur.

Þor­gerður segir að þrátt fyrir allt gott að mál­inu sé lokið, enda hafi það verið „glóru­laust með öllu". Farm­sókn­ar­flokk­ur­inn ætti að biðja þjóð­ina, skatt­greið­endur og Hafdísi Helgu afsök­unar á mál­inu og sjá sóma sinn í að taka almanna­hags­muni umfram sér­hags­muni og frænd­hygli.

Ragnar Önund­ar­son skilur eftir athuga­semd við færslu Þor­gerðar þar sem hann spyr hvort slík stór­yrði séu við hæfi. Enginn sé „rass­skelltur“ fyrir dómi þó úrskurður dóms sé honum ekki í hag. Biður hann Þorgerði að halda fúk­yrðum utan stjórn­valda, þau fái nóg pláss á sam­fé­lags­miðlum.

Hér að neðan má nálg­ast færslu Þor­gerðar í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár