Pútín valdamestur allra á uppfærðum lista Forbes

Vladímir Pútín Rúss­lands­forseti er valda­mesti maður heims samkvæmt uppfærðum lista fagtímaritsins Forbes. Hann skákar Barack Obama forseta Banda­ríkjanna, líkt og hann gerði á síðasta ári þegar hann tók efsta sætið af Obama.

Að mati Forbes hefur Pútín gríðar­lega mikil völd og áhrif í heiminum í dag, ekki síst í gegnum opinbera orku­stefnu ríkis­stjórnar hans sem hefur áhrif um alla Evrópu, til Asíu og þannig á heimsbúa­skapinn allan. Þá hefur hann einnig sýnt óttaleysi í samskiptum við Banda­ríkin.

Hinn 62 ára gamli Pútín, sem er með doktors­próf frá ríkis­háskólanum í St. Péturs­borg í Rússlandi, hefur einnig sýnt að honum er alvara með að breyta Rússlandi í Sovét­ríkin. Útþenslu­stefna hans og ógnar­tilburðir gagnvart Úkraínu hafa skapað ótta um alla Evrópu.

Hvað sem fólki finnst þá hefur þessi staða aukið völd Pútíns, að mati Forbes, og það sama má segja um gríðar­lega stóra jarðgas viðskipta­samninga sem Rússar hafa gert við Kína og Íran á árinu. Meðal annars samning við Kína upp á 70 milljarða Bandaríkja­dala, 8.610 milljarða króna.

Uppfærðan lista Forbes yfir valda­mesta fólks heims má sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár