Mervyn King segir enn vera hættu á bankakreppu

Mervyn King, fyrr­verandi banka­stjóri Englands­banka, seðla­banka Bretlands­eyja, segir enn vera hættu á því að alþjóðleg banka­kreppa geri vart við sig á nýjan leika og að fjármála­kerfi heimsins séu enn veikburða. Þetta kemur fram í viðtali sem breska ríkis­útvarpið BBC tók við King.

„Það fer gegn heilbrigðri skynsemi að halda að við getum haldið vöxtum niðri til eilífðar,“ segir King meðal annars í viðtali við BBC, en Englands­banki hefur haldið vöxtum við örlítið fyrir ofan núllið í fimm ár frá því fjármála­kreppan náði hámarki, í von um að örva hagkerfið og styðja við hagvöxt.

King var á dögunum gesta­ritstjóri á Radio 4, einni af útvarps­rásum BBC, og tók viðtal við Ben Bernanke, fyrr­verandi banka­stjóra Seðla­banka Banda­ríkjanna, í Washington DC þar sem þeir ræða um stöðu efnahags­mála í heiminum. Viðtalið var birt á vef BBC í dag.

Í viðtalinu ræða þeir um aðgerðirnar sem seðla­bankar gripu til fyrir fimm árum og hvernig þær hafa reynst á síðustu árum. Þeir eru báðir sammála um að vel hafi tekist til, og hlutirnir hefðu getað farið á miklu verri veg fyrir heims­búskapinn. Þá segir Bernanke að ekki hafi verið leyst úr öllum vanda­málum ennþá og þau geti orðið illviðráðanleg á nýjan leik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár