Fórnaði öllu og uppskar að lokum

Ein ríkasta unga kona Banda­ríkjanna, samkvæmt Forbes, er Elisabeth Holmes, þrítug að aldri. Eignir hennar eru metnar á 4,5 milljarða Bandaríkja­dala eða sem nemur um 550 milljörðum króna. Holmes hætti námi í Stanford háskóla þegar hún var 19 ára og ákvað að eyða öllum sparnaði sínum í að stofna fyrirtæki í kringum uppfinningu sem hún hafði unnið að, sem snéri að framkvæmd blóðprufa. Fyrirtæki hennar, Theranos, hefur unnið að þróun hugmyndarinnar allt frá árinu 2003 en Holmes hefur sjálft stýrt öllum fjármagns­söfnunum fyrir­tækisins. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Samtals hafa fjár­festingar­sjóðir í Kaliforníu lagt fyrir­tækinu til 400 milljónir Bandaríkja­dala og hafa verðlagt félagið á ríflega 9 milljarða Bandaríkja­dala, eða ríflega þúsund milljarða króna.

Holmes á helminginn í félaginu, sem þýðir að hlutur hennar er metinn á 4,5 milljarða dala, eins og fyrr segir. Walgreens, ein stærsta lyfja­verslunar­keðja Banda­ríkjanna, með um 8.100 búðir í Banda­ríkjunum, ákvað að veðja á blóðuprufuaðferðir Theranos en helsti styrkileiki þeirra er að kostnaðurinn er aðeins brotabrot af því sem blóðaprufur kosta almennt í dag og áreiðanleikinn er auk þess mikill. Nákvæmar niður­stöður er hægt að fá með aðeins einum dropa af blóði. Flest bendir til þess að Theranos verði risavaxið fyrirtæki í fram­tíðinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár