Fleiri en ein fjöldaskotárás á hverjum degi ársins í Bandaríkjunum

Í ræðu sinni eftir skot­árásina í Oregon í gær hvatti Barack Obama Bandaríkja­forseti fjölmiðla til að taka saman tölur um fjölda Bandaríkja­manna sem hefðu látist af völdum hryðju­verka á síðasta áratug og bera saman við fjölda Bandaríkja­manna sem hefðu látist af völdum byssa, og birta tölurnar saman.

Blaða­maður á Vox tók saman fjölda dauðsfalla vegna hryðju­verka og skotárása árin 2001 til 2011 og birti frétt og línurit á síðunni í gær. Þá eru ekki tekin með dauðsföll vegna sjálfs­víga með skot­vopnum, en mun fleiri Bandaríkja­menn deyja þannig en af völdum annarra með skotvopn.

Sjá má tölurnar í meðfylgjandi myndbandi, sem Vox birtir.



Number of US deaths from ter­r­orism vs. gun homicidesThe US has taken a lot of steps to combat ter­r­orism, but what about gun violence?

Posted by Vox on Friday, October 2, 2015

Frétta­miðillinn Quartz bendir einnig á áhuga­verða staðreynd, sem er að meira en ein fjölda­skotárás hefur átt sér stað á hverjum degi það sem af er ári í Banda­ríkjunum. Fjölda­skotárás er þegar fjórir eða fleiri verða fyrir skotum. Í dag er 275. dagur ársins en skot­árásir af þessu tagi í Banda­ríkjunum eru 294.

There has been at least one mass shooting in the US for every day in 2015 http://t.co/yLGgPPFHGx pic.twitter.com/Sp8LR0xsUy

— Quartz (@qz) October 2, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár