Sjötíu ár liðin frá uppgjöf Þjóðverja og morðinu á Guðmundi Kamban

Að kvöldi 4. maí 1945 var tilkynnt á danskri rás breska ríkis­útvarpsins, BBC, að Þjóð­verjar hefðu lýst yfir uppgjöf í norð­vesturhluta Þýska­lands, Hollandi og Danmörku. Þegar þessar fréttir bárust til Danmerkur þustu landsmenn út á götur og torg borga og bæja til að fagna tíðindunum. Opinber­lega var tilkynnt um uppgjöfina daginn eftir og því nefna Danir 5. maí Friðar­daginn. Þá hafði hernámið staðið í fimm ár og tæpum mánuði betur.

Þjóð­verjar réðust inn í Danmörku snemma morguns 9.apríl 1940. Fyrir­staðan var nánast engin og Danir gáfust upp fyrir þýska herliðinu svotil samstundis. Danska stjórnin sætti nokkurri gagnrýni fyrir að gefast upp baráttu­laust og ekki síður fyrir að sýna hernáms­liðinu samstarfs­vilja, bæði í orði og verki öll hernáms­árin. Þeir voru þó fleiri sem studdu það sjónarmið stjórn­málamanna, og konungsins Kristjáns X, að ekki hefði verið annarra kosta völ á þeim tíma.

Margir sem um þessi mál hafa fjallað í fjöl­miðlum að undan­förnu, vegna tíma­mótanna, eru á þeirri skoðun að hernámið hefði haft í för með sér meiri erfið­leika fyrir dönsku þjóðina ef stjórnin hefði ekki valið leið „samvinnu með semingi“ eins og margir hér orða það. Ólíkt mörgum öðrum þjóð­höfðingjum flúði konungurinn og fjöl­skylda hans ekki land og Kristján X reið daglega á hesti sínum um Kaupmanna­höfn. Með því móti vildi hann sýna löndum sínum að öllu væri óhætt, þrátt fyrir ástandið.

Danir kunnu líka vel að meta þegar Adolf Hitler sendi konunginum langt bréf með heilla­óskum í tilefni af 72 ára afmæli hans (26. sept. 1942) og þakkaði Kristján X kurteis­lega, en mjög þurrlega. Hitler trylltist af bræði yfir þessu stuttaralega svari konungsins og rak danska sendi­herrann í Berlín úr landi í kjölfarið og kallaði þýska sendi­herrann í Kaupmanna­höfn heim. Mánuði síðar krafðist þýska hernáms­stjórnin afsagnar danska forsætis­ráðherrans Vilhelms Buhl og við tók Erik Scavenius sem Þjóð­verjar töldu sér hlið­hollari. Scavenius þessi fékk fremur óblíð eftirmæli á eftir­stríðs­árunum en í dag er tónninn í hans garð annar. Margir sagn­fræðingar nútímans telja hann hafa haldið eins vel á spilunum, fyrir hönd lands og þjóðar, og unnt var miðað við aðstæður.

Aukin andspyrna Dana og Werner Best


Haustið 1942 var skipt um yfir­mann þýska her­námsliðs­ins, Werner Best kom í stað Cecil von Renthe-Fink. Stjórn Hitlers taldi Werner Best betur til þess fall­inn að takast á við vax­andi and­spyrnu heima­manna í Danmörku. Werner Best lék tveim skjöldum. Í orði kveðnu sýndi hann hörku, eins og skip­anir frá Berlín mæltu fyrir um en hins­vegar lagði hann mikla áherslu á sam­vinnu við dönsk stjórn­völd eftir því sem kostur var.

Þjóð­verjar fengu í stórum stíl landbúnaðar­afurðir frá Danmörku og einnig ýmsar aðrar vörur. Werner Best var vel ljóst að harka og harðstjórn væri ekki rétta aðferðin til að stjórna Danmörku, kannski allra síst bændum. Það hefur aldrei verið sannað með beinum hætti en er þó altalað hér í Danmörku að Werner Best hafi með einhverjum hætti gert dönskum stjórn­völdum viðvart um að handtökur gyðinga í Danmörku myndu hefjast á tilteknum degi, nánar tiltekið 1. október 1943. Þetta varð til þess að langflestum gyðingum sem þá voru í landinu (tæplega átta þúsund) tókst að komast yfir til Svíþjóðar og sleppa þannig við þau örlög sem urðu hlut­skipti milljóna gyðinga í öðrum löndum.

Lok hernámsins og morðið á Guðmundi Kamban


Eins og áður sagði lauk her­nám­inu í Danmörku form­lega að morgni 5. maí 1945. Í land­inu var mikil ringul­reið í bland við gleð­ina yfir að þjóðin skyldi vera laus undan oki Þjóð­verja. Lög­leys­is­á­stand sögðu fjöl­miðlar síðar.

Uppsala­gata 20 í Kaupmanna­höfn, þar sem Kamban var myrtur 5. maí 1945. Mynd: Borgþór Arngrímsson

Uppsalagata 20 í Kaupmannahöfn, þar sem Kamban var myrtur 5. maí 1945. Mynd: Borgþór Arngrímsson
Upp­sa­la­gata 20 í Kaup­manna­höfn, þar sem Kamban var myrtur 5. maí 1945. Mynd: Borgþór Arn­gríms­son

Danskir andspyrnu­menn (kölluðu sig gjarna frelsis­liða) voru snemma á fótum og um hádegisbil komu þrír þeirra á Hotel-Pension Bartoli við Uppsala­götu 20 í Kaupmanna­höfn. Þar bjó rithöfundurinn Guðmundur Kamban ásamt Agnete eiginkonu sinni og Sibil dóttur þeirra hjóna, þau sátu að snæðingi. Frelsis­liðarnir skipuðu Guðmundi að fylgja sér, hann spurði frá hverjum sú skipun kæmi og bað um að fá að sjá handtöku­skipun. Þessum orða­skiptum lauk með því að einn þremenninganna hleypti af skoti og féll rithöfundurinn í gólfið örendur.

Morðið vakti reiði á Íslandi


Fréttin um morðið á Kamban frétt­ist nær sam­stundis til Íslands og olli mik­illi reiði. Íslensk stjórn­völd kröfð­ust rann­sóknar og skýr­inga en svör danskra stjórn­valda voru rýr. Í orð­send­ingu danska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins er morðið harmað en ekki vikið einu orði að því að þarna var í raun um að ræða aftöku, án dóms og laga.

Danskir fjöl­miðlar fjölluðu mikið um morðið, sum þeirra bendluðu Kamban við þýsku nasistana og danska nasista­flokknum og eitt þeirra greindi frá því að hann hefði veitt mótspyrnu þegar átti að handtaka hann. Þótt þessar sögu­sagnir hefðu í öllum megin­atriðum reynst rangar urðu þær þó langlífar.

Skjöldur við inngang hússins við Uppsala­götu 20. Mynd: Borgþór Arngrímsson

Skjöldur við inngang hússins við Uppsalagötu 20. Mynd: Borgþór Arngrímsson
Skjöldur við inn­gang húss­ins við Upp­sala­götu 20. Mynd: Borgþór Arn­gríms­son

Guðmundur Kamban var þekktur í Danmörku og víðar í Evrópu. Hann hafði verið fastráðinn leik­stjóri við Folketeatret og leik­stjóri við Konunglega leikhúsið í Kaupmanna­höfn. Hann var þó fyrst og fremst þekktur sem rithöfundur og leikskáld. Hann var alla tíð umdeildur, það gilti jafnt um skáldskap hans og störf. Stór í brotinu var sagt og lét ekki hlut sinn fyrir neinum.

Enn margt á huldu


Talsvert hefur verið ritað um morðið á Kamban, ástæður þess og, að því er virð­ist, afar tak­mark­aðar skýr­ingar og upp­lýs­ingar danskra stjórn­valda. Þeir Ásgeir Guð­munds­son sagn­fræð­ingur og Sveinn Ein­ars­son leik­li­st­ar­fræð­ingur hafa báðir fjallað ítar­lega um þessi mál. Þau skrif sem eru bæði ítar­leg og fróð­leg, og byggja á ítar­legri heim­ilda­vinnu, verða ekki rakin hér. Af þeim má ráða að mörgum spurn­ingum sé enn ósvarað varð­andi þetta mál.

Ljóst er að nafn Guðmundar Kambans var ekki á lista danskra stjórn­valda yfir það fólk (21 þúsund manns) sem talið var að hefði unnið með þýsku hernáms­stjórninni og handtaka átti í stríðslok. Þótt skoðanir hans hafi kannski á tímabili fallið að ríkjandi viðhorfum Þjóðverja á sumum sviðum átti það við um marga aðra og ekki saknæmt, hvað þá dauðasök.

Folketeatret í Kaupmanna­höfn. Kamban var fastráðinn leik­stjóri þar á árunum 1922-1924. Mynd: Borgþór Arngrímsson.

Folketeatret í Kaupmannahöfn. Kamban var fastráðinn leikstjóri þar á árunum 1922-1924. Mynd: Borgþór Arngrímsson.
Fol­ket­eatret í Kaup­manna­höfn. Kamban var fast­ráð­inn leik­stjóri þar á árunum 1922-1924. Mynd: Borgþór Arn­gríms­son.

Vitað er að danskir andspyrnu­menn fylgdust grannt með því hverjir legðu leið sína í Dagmarshús í Kaupmanna­höfn, höfuð­stöðvar þýsku hernáms­stjórnarinnar. Guðmundur Kamban var einn þeirra sem átti erindi í Dagmars­húsið. Erindi hans var að sækja laun sem hann fékk (föst upphæð mánaðar­lega um skeið) fyrir að safna saman upplýsingum og skrifa um ætiþörunginn söl. Kamban hafði tekist að vekja áhuga þýskra á hollustu sölvanna. Þessu verki lauk Kamban ekki en í fórum Lands­bókasafns er til uppkast að því ásamt ýmsum upplýsingum. Þessi gögn fékk safnið frá Gísla Jónssyni bróður Kambans. Þetta verk um sölin var eftir stríð flokkað sem launa­vinna, lönarbejde, og ekki saknæmt.

Hver var morðinginn?


Í bók Sveins Ein­ars­sonar „Kamban, líf hans og starf“ (2013) kemur fram að form­leg lög­reglu­rann­sókn á morði Guð­mundar Kambans fór aldrei fram og þær vitna­leiðslur sem fram fóru alls ófull­nægj­andi. Vitn­is­burður lög­manna Kambans var aldrei tek­inn til gilds mats.

Nöfn dráps­manna Kambans hafa aldrei verið dregin fram í dags­ljósið og þeir hafa aldrei þurft að standa reiknings­skap gjörða sinna. Kambansmálinu er því í raun ekki lokið, sjö áratugum eftir dauða hans.

Dönskum stjórn­völdum er full­kunnugt um hver það var sem hleypti af skotinu sem batt enda á líf Guðmundar Kambans um hádegisbil 5. maí 1945. Sá mun hafa verið iðnmeistari, sem lifði í áratugi eftir að stríðinu lauk. Einn Íslend­ingur veit með vissu nafn þessa manns. Honum leyfist ekki að skýra frá nafni hans, né samverka­manna hans, að viðlagðri fangelsis­vist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár