Hvað hafði „Aftur til framtíðar II“ rétt fyrir sér varðandi árið 2015?

Eftir nokkra mánuði mun unglings­piltur frá smábænum Hill Valley í Kaliforníu mæta á okkar tíma á fljúgandi Delorean sportbíl úr fortíðinni, í þeim tilgangi að bjarga fjöl­skyldunni sinni. Hann mun notast við svif­brettin okkar og færanlegu sorp­brennslu­kjarna­ofnanna okkar, og mun verða vitni að því þegar hafnabolta­liðið Cubs frá Chicago tryggir sér heims­meistara­titilinn.

Jæja, kannski er lítið spádóms­gildi fólgið í öðrum hlutanum í „Aftur til framtíðar“ þríleiknum, með leikarann Michael J. Fox í broddi fylkingar, en myndin spáði þó rétt fyrir um ýmsar tækni­framfarir sem samfélagið notast við árið 2015.

Frétta­vefmiðillinn Quartz hefur tekið saman skemmtilegan lista yfir þá hluti sem kvik­myndin spáði rétt fyrir um fyrir 26 árum síðan.

Tæknilegir fylgihlutir


Það má vel vera að margir tækni­þyrstir bíði með eft­ir­vænt­ingu eftir Apple úrinu sem vænt­an­legt er á markað á þessu ári, en ansi tækni­legir fylgi­hlutir hafa engu að síður verið á mark­aði í þó nokkurn tíma. Samsung hefur verið leið­andi á þeim mark­aði að und­an­förnu með alls kyns tækni­úrum, arm­böndum og heyrn­ar­tólum.

Í kvik­myndinni eru nokkrar persónur með smart-úr, og sonur Marty er með einhvers konar snjall-gleraugu á höfðinu sem hann getur notað til að horfa á sjón­varpið eða til að tala í símann. Ekki ósvipuð græja og Google Glass gleraugun, sem komu út árið 2013, en von er á nýrri útgáfu þeirra á þessu ári, sem og sýndar­veruleika­gleraugu Oculus Rift frá Facebook.

Risastórir flatskjáir og myndbands símtöl


Á McFly heim­il­inu í öðrum hluta Aftur til fram­tíðar þrí­leiks­ins, má sjá stóra flat­skjái, þar sem Marty hinn yngri getur horft á margar sjón­varps­rásir á sama tíma. Það er tækni sem okkur er vel kunn árið 2015. Í dag getum við meira að segja horft á sjón­varps­stöð á sama tíma og við spilum leik í leikja­tölv­unni.

Skype gerði okkur svo kleyft að taka myndbands símtöl heims­horna á milli, ekki ósvipað því og spáð var fyrir í Aftur til framtíðar II.

Lífkenni (Biometrics)


Það er nokkuð langt síðan fingrafaraskannar ruddu sér til rúms, en fingraför þeirra sem hafa til að mynda farið í ferða­lag til Banda­ríkj­anna nýlega hafa mjög trú­lega verið skönnuð við landamæra­eft­ir­litið. Apple kynnti til sög­unnar fingrafaraskanna á iPhone 5S árið 2013 og það sama gerði Samsung á Galaxy S5 ári síðar. Þá hleypti Apple af stokk­unum Apple Pay, greiðslu­þjón­ustu sem styðst við áður­nefnda fingrafaraskanna.

Í Aftur til framtíðar II borgar Biff fyrir leigubíl með því að þrýsta þumli á þar til gerðan skanna, sem er ekki ósvipað því sem við getum gert í leigu­bílum í dag sem taka farsíma­greiðslur. Munurinn á myndinni og því sem við þurfum að gera í dag, er að greiðslan hjá okkur fer í gegnum tæki, á meðan í myndinni þurfti Biff bara sjálft fingra­farið til að borga.

Þrívídd út um allt


Í kvik­mynd­inni bregður Marty heldur betur í brún þegar hákarl í þrí­vídd stekkur út úr bíó­aug­lýs­ingu og gerir sig lík­legan til að gleypa sögu­hetj­una okkar í einum munn­bita. Um var að ræða aug­lýs­ingu fyrir nítj­ándu kvik­mynd­ina um Ókindina, eða „Jaws.“ Enn þann dag­inn í dag höfum við ekki komið okkur upp við­líka þrí­vídd­ar­tækni, við erum að vinna í því, en við erum komin með þrí­víddar-sjón­vör, ara­grúa kvik­mynda í þrí­vídd og leikja­tölvur sem bjóða upp á tölvu­leiki í þrí­vídd, þar sem meira segja þarf ekki að not­ast við þrí­víddar-gler­augu til að spila.

Þá höfum við því miður ekki heldur fengið að sjá Jaws 5, eða fimmtán fleiri framhalds­myndir um hákarlinn ógurlega.

Þá má sjá ýmislegt fleira bregða fyrir í Aftur til framtíðar II, sem við könnumst við í dag svo sem dróna, spjald­tölvur og forritaðar ljósa­stillingar fyrir heimilið. Þó eru enn nokkrir hlutir í kvik­myndinni sem við höfum ekki enn tekið í okkar þágu, svo sem svif­bretti en eitt fyrirtæki er nálægt því að þróa slíkt til að setja á markað.

Þá hefur mann­kyninu ekki heldur tekist að stunda tíma­ferðalög, bílarnir okkar eru ekki heldur farnir að fljúga, og fötin okkar laga sig ekki sjálf­virkt að stærð okkar og lögun. Þá komust tvöföld hálsbindi sem betur fer aldrei í tísku, en miðað við bíómynd sem var framleidd á tímum Nintendo Electronics System leikja­tölvunnar í árdaga internetsins, var furðulega margt í myndinni sem staðist hefur tímans tönn. Það verður að minnsta kosti áhugavert að fylgjast með því hvort kvik­myndir frá árinu 2015 verði sannspáar um lífið árið 2041.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár