Telur „álitaefni“ hvort sýslumannafrumvarp Jóns samræmist markmiðum byggðaáætlunar

Frum­varps­drög frá Jóni Gunn­ars­syni dóms­mála­ráð­herra sem liggja frammi í sam­ráðs­gátt stjórn­valda hafa hlotið fremur dræmar und­ir­tektir umsagn­ar­að­ila. Byggða­stofnun er ekki sann­færð um að frum­varpið gangi í takt við nýsam­þykkta byggða­á­ætlun.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra.
Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn Byggða­stofn­unar seg­ist telja það „álita­efni“ hvort fram­lögð frum­varps­drög dóms­mála um sam­ein­ingu sýslu­manns­emb­ætta, sem þessa dag­ana eru til umsagnar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, sam­ræm­ist mark­miðum nýsam­þykktrar þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um byggða­á­ætl­unar 2022-2036.

Þetta má lesa í umsögn stjórnar Byggða­stofn­unar við frum­varps­drögin. Alls gerir stjórnin athuga­semdir í sex liðum við drögin, sem hlotið hafa nei­kvæð við­brögð á meðal sveit­ar­stjórna víða um land, en stefnt er að því að

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um stefnu­mót­andi byggða­á­ætlun, sem sam­þykkt var á Alþingi 15. júní, er lögð áhersla á að opin­ber þjón­usta í hér­aði verði efld, atvinnu­tæki­færum fjölgað og rík­is­rekstur bættur. Hvað sýslu­manns­emb­ætti varðar segir að efla eigi starf­semi sýslu­manns­emb­ætta um allt land og opin­bera þjón­ustu í hér­aði með betri nýt­ingu inn­viða, þ.m.t. staf­rænnar tækni, hús­næðis og mannauðs.

Stjórn Byggða­stofn­unar telur álita­mál sem áður segir að frum­varp dóms­mála­ráð­herra sam­ræm­ist því sem þarna er stefnt að.

Mikilvægt að verðmætar stjórnunarstöður dreifist um landið

Fram kemur í frum­varps­drög­unum að stefnt sé að því að emb­ætti sýslu­manns verði stað­sett utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Þrátt fyrir að stjórn Byggða­stofn­unar telji það jákvæða stefnu þykir henni „ástæða til að benda á mik­il­vægi þess að halda for­ræði og yfir­stjórn verk­efna opin­berrar stjórn­sýslu í byggðum lands­ins“.

„Stjórn telur mik­il­vægt að halda verð­mætum og eft­ir­sóttum stjórn­un­ar­störfum í stjórn­sýslu rík­is­ins dreifðum um byggðir lands­ins og telur að hægt sé að ná þeim mark­miðum sem sett eru fram í frum­varp­inu um að bæta þjón­ust­una og gera hana enn skil­virk­ari innan núver­andi stjórn­sýslu­fyr­ir­komu­lags, ekki síður en fyr­ir­hugað er með mið­stýrð­ari ein­ingu,“ segir í umsögn­inni frá Byggða­stofnun.

Stjórn Byggða­stofn­unar lýsir yfir ánægju með þau „skýru áform“ sem birt­ast frum­varp­inu um að fjölga opin­berum verk­efnum í lands­byggð­unum, en segir hins vegar „ekki skil­greint hvaða verk­efni er um að ræða eða að þeim hafi verið fund­inn staður“, auk þess sem ekki sé sýnt fram á að áformum um slíkan til­flutn­ing verk­efna og þar með mark­miðum um fjölgun opin­berra verk­efna í lands­byggð­unum verði ekki við komið í núver­andi stjórn­skipu­lagi sýslu­manns­emb­ætt­anna.

„Ekki verður séð með aug­ljósum hætti að nauð­syn sé á þessum miklu stjórn­sýslu­breyt­ingum til að ná kynntum mark­miðum um bætta þjón­ustu og fjölgun verk­efna í lands­byggð­unum,“ segir í umsögn stofn­un­ar­innar.

Gefin fyrirheit hafi ekki gengið eftir er sýslumönnum var fækkað úr 24 í 9

Stjórn Byggða­stofn­unar seg­ist telja ástæðu til að minna á að tor­tryggni gæti gagn­vart sam­þjöppun starfsein­inga og vel meintra yfir­lýs­inga um að tryggja til­vist þjón­ustu­ein­inga og nýta betur afl starfs­manna til auk­innar þjón­ustu.

„Við und­ir­bún­ing laga nr. 50/2014 þar sem sýslu­mönnum var fækkað úr 24 í 9 voru gefin fyr­ir­heit í þá veru en efndir fóru ekki að öllu leyti eftir. Það eru því skilj­an­legar

áhyggjur af því að „úti­búum“ verði lokað og eftir standi mið­stýrð, fjar­læg kerf­is­ein­ing þar sem íbúar í hinum dreifðu byggðum þurfa að sækja lengra og eftir flókn­ari leiðum, oft í sínum mestu lífskrísum,“ segir í umsögn­inni.

Sveitarfélög sum efins um frumvarpið

Umsagn­ar­frestur um frum­varps­drög dóms­mála­ráð­herra var lengdur á dög­unum, eftir að athuga­semdir bár­ust þess efnis að tíma­setn­ing birt­ingar frum­varps­drag­anna væri slæm í ljósi sum­ar­leyfa, en málið var birt í sam­ráðs­gátt­inni 13. júlí.

Sveit­ar­fé­lög hafa sum hver gert tölu­verðar athuga­semdir við efni frum­varps­ins og telja að skort hafi á sam­ráð í ferl­inu. Bæj­ar­stjórn Vest­manna­eyja­bæjar vill að dóms­mála­ráð­herra falli frá frum­varp­inu á þessum tíma­punkti og hefji „eðli­legt sam­ráð við hlut­að­eig­andi aðila um fram­tíð­ar­sýn fyrir sýslu­manns­emb­ættin í land­inu“.

Í umsögn frá bæj­ar­ráði Grinda­vík­ur­bæjar er sam­ráðs­leysi einnig gagn­rýnt og það sagt vekja furðu að sam­hliða sam­ein­ingu emb­ætta standi til að leggja niður útibú sýslu­manns í Grinda­vík.

„Í umsögn um frum­varpið er þess getið að sam­ráð var haft við ákveðin sveit­ar­fé­lög en óskilj­an­legt er að ekki var haft sam­ráð við Grinda­vík sem er það sveit­ar­fé­lag ásamt Dalvík sem eiga að missa starf­stöðvar sínar,“ sagði í umsögn bæj­ar­ráðs­ins.

Sumir umsagn­ar­að­ilar kalla svo eftir því að það verði betur skil­greint í frum­varp­inu hvaða verk­efni sýslu­manns­emb­ætta skuli vinna hvar, í stað þess að sá sem er ráð­herra hverju sinni hafi ákvörð­un­ar­vald um það hvaða starfs­stöðvar sýslu­manns skuli sinna hvaða verkum.

„Drögin fela í sér óþarf­lega víð­tækt fram­sal valds til ráð­herra. Það er sett í hendur ráð­herra að ákveða með reglu­gerð hvaða þjón­ustu­fram­boð verði á hverri starfs­stöð. Réttra væri að skil­greina í lögum hvaða ákveðna lág­marks­þjón­usta verði veitt á hverri starfs­stöð, t.a.m. að þjón­usta í sifja­málum, dán­ar­búum, TR, lög­bókanda og lög­ráða­málum verði veitt á öllum starfs­stöðvum, og að ekki verði um þjón­ustu­skerð­ingu að ræða fyrir íbúa. Mikil og fjöl­breytt þekk­ing er til staðar hjá lög­lærðum full­trúum og starfs­fólki starfs­stöðva emb­ætta sýslu­manna. Með sér­hæfðri þjón­ustu á lands­vísu og stað­bund­inni þjón­ustu í heima­byggð er hætta á að þessi mikla þekk­ing og tengsl við sam­fé­lagið fari for­görðum og ákveð­inn speki­leki eigi sér stað,“ segir í umsögn um málið frá Fjalla­byggð, sem bæj­ar­stjór­inn Sigríður Ingv­ars­dóttir ritar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár