Steingrímur: Bæta þarf samskipti ríkisstjórnar og Alþingis

Störfum þings­ins hefur nú lokið að sinni. Í ávarpi for­seta Alþingis sagði hann meðal ann­ars að taka þyrfti skipu­lag þing­starf­anna og starfs­hætti á Alþingi til end­ur­skoð­unar.

Steingrímur J. Sigfússon
Stein­grímur J. Sig­fús­son Mynd: Bára Huld Beck

Bæta þarf sam­skipti rík­is­stjórnar og Alþingis við fram­lagn­ingu stjórn­ar­mála og taka þarf skipu­lag þing­starf­anna og starfs­hætti á Alþingi einnig til end­ur­skoð­unar. Þetta sagði Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis í ávarpi sínu við frestun þing­funda í gær.

Varðandi sam­skipti rík­is­stjórnar og Alþingis sagði hann að for­sætis­nefnd og for­menn þing­flokka hefðu átt um þetta efni gagn­legan fund með for­sæt­is­ráð­herra um miðjan apríl síð­ast­lið­inn. „Ljóst er að einkum tvennt brennur á þing­mönnum í þessum efnum. Hið fyrra er að breyta þarf vinnslu­ferli mála innan Stjórn­ar­ráðs­ins og aðgreina end­ur­flutt þing­mál og ný mál. Þannig má tryggja að end­ur­fluttu málin komi fram snemma á haust­þingi en drag­ist ekki fram undir loka­fresti fyrir jól eða að vori,“ sagði hann.

Í annan stað hefðu verið uppi óskir um að þing­mála­skrá rík­is­stjórnar væri upp­færð reglu­lega á vef Stjórn­ar­ráðs­ins og þess gætt að hún væri raun­hæf lýs­ing á vinnslu­stöðu mála. Það myndi auka fyr­ir­sjá­an­leika í skipu­lagn­ingu þing­halds­ins en eftir slíku væri mjög kallað af hálfu þing­manna. „Þeir vilja eðli­lega geta skipu­lagt tíma sinn betur en nú er hægt. Hæstv. for­sæt­is­ráð­herra hefur tekið vel í þessar ábend­ingar og bind ég því vonir við að sjá breyt­ingar í þessum efnum á næsta þingi.“

Þarf að auka fyrirsjáanleika í störfum þingsins

Stein­grímur sagði, eins og áður hefur komið fram, að skipu­lag þing­starf­anna og starfs­hætti á Alþingi þyrfti einnig að taka til end­ur­skoð­unar, meðal ann­ars í því skyni að auka fyr­ir­sjá­an­leika í störfum þings­ins. Um það væru allir þing­flokkar sam­mála.

„Nið­ur­staðan varð því sú í mars sl. að koma á fót vinnu­hópi til að sinna þessum málum og er hann auk for­seta skip­aður einum full­trúa frá stjórn­ar­liðum og öðrum frá stjórn­ar­and­stöðu. Hópurinn hefur þegar komið saman til skrafs og ráða­gerða en vegna anna í þing­störfum hefur honum ekki tek­ist að ljúka störfum. Engu að síður tel ég að þegar hafi komið fram, bæði í umræðum við for­menn þing­flokka og í vinnu­hópnum, ýmsar góðar hug­myndir sem mik­il­vægt er að vinna frekar úr. Ég hef ein­sett mér að þetta starf haldi áfram á haust­þing­inu. Vissum hlutum hefur þegar verið hrint í fram­kvæmd, eins og t.d. að senda for­mönnum allra þing­flokka í lok hverrar viku dag­skrá þess mánu­dags sem í hönd fer og drög að funda­haldi út næstu viku,“ sagði Stein­grímur.

Störf þingsins mótast af sérstökum aðstæðum

Stein­grímur benti á að þingið hefði verið fremur stutt, reglu­legt þing­hald hefði sem sagt haf­ist þremur mán­uðum síðar en venju­lega, og hefðu þau gert þar í við­bót rúm­lega hálfs mán­aðar hlé vegna sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga. „Eins og við er að búast hafa störf þings­ins mót­ast af þessum aðstæðum. Rík­is­stjórnin hafði skemmri tíma til að und­ir­búa mál fyrir Alþingi en ella hefði verið. Þing­mála­skrá rík­is­stjórnar sem lögð var fram í upp­hafi þings var því í reynd yfir­lit yfir mál sem voru í vinnslu og kynnu að koma fyrir þingið fremur en raun­hæfur verk­efna­listi,“ sagði hann.

„Við lok þing­halds­ins vil ég þakka öllum alþing­is­mönnum fyrir sam­starfið. Eðlilega greinir þing­menn á um ýmis mál, en hér á Alþingi hefur almennt ríkt góður andi og ríkur sam­starfsvilji og vil ég þakka fyrir það. Þá hefur þetta þing, þótt stutt sé, afka­stað miklu og leitt mörg stór mál til lykta með far­sælum hætti. Alls 84 frum­vörp hafa orðið að lögum og þingið hefur sam­þykkt 29 álykt­anir.

Ég færi vara­for­setum sér­stakar þakkir fyrir ágæta sam­vinnu við stjórn þing­halds­ins, svo og for­mönnum flokk­anna og þing­flokka fyrir mjög gott sam­starf. Skrif­stofu­stjóra og starfs­fólki Alþingis þakka ég góða aðstoð og mjög mikið og gott starf og sam­vinnu í hví­vetna þar sem mikið hefur mætt á, ekki síst nú síð­ustu dag­ana.

Ég óska utan­bæj­ar­mönnum góðrar heim­ferðar og ánægju­legrar heim­komu og vænti þess að við hitt­umst öll heil þegar Alþingi kemur saman að nýju í næsta mán­uði,“ sagði Stein­grímur í ávarpi sínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár