Lögreglan í Kaupmannahöfn: árásin rannsökuð sem hryðjuverk

Eina sem er vitað um mennina sem framkvæmdu skotárás í Kaupmanna­höfn fyrr í dag er að þeir eru tveir og að þeir hafi verið í dökkum jökkum. Lögreglan meðhöndlar málið eins og um hryðju­verk sé að ræða en geta ekki fullyrt um að svo sé. Allt tiltækt lögreglulið hefur verið kallað út. Þetta kom fram á fréttamanna­fundi sem lögreglan í Kaupmanna­höfn hélt nú klukkan 18:00.

Talsmaður lögreglunnar segir að ekki liggi enn fyrir af hverju mennirnir framkvæmdu árásina. Það sé vissulega líklegt að sænski skomyndateiknarinn Lars Vilk hafi verið skot­markið en það er ekki öruggt. Fleiri koma til greina sem mögulegt skotmark, til dæmis sendi­herra Frakk­lands í Danmörku.

Lögreglan kallaði eftir því að vitni myndu gefa sig fram sem hefðu séð árásar­mennina tvo hlaupa frá Volkswagen Polo bifreið sem þeir höfðu stolið, en líkt og komið hefur fram skiptu þeir um bifreið eftir að hafa flúið á Polo-bifreiðinni.

Staðfest er að einn er látinn eftir árásina og að lögreglu­menn séu særðir. Tals­maðurinn sagði að hinir særðu væru ekki alvarlega særðir.

#cphshooting Tweets

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár