Markaðsvirði Apple = 90000000000000 króna

Markaðs­virði Apple er nú í hámarki, en félagið er verð­mætasta hluta­félagi í heimi. Séð miðað við lokagengi á mörkuðum í gær er markaðs­virði félagsins nú 698 milljarðar Bandaríkja­dala, eða um 90 þúsund milljarðar króna. Til saman­burðar er árleg lands­framleiðsla Íslands um 1.700 milljarðar króna.

Markaðs­virði Apple hefur vaxið jafn mikið undir stjórn Tim Cook og það gerði undir Steve Jobs, í Bandaríkja­dölum talið. Steve Jobs lét af stöfum um mitt ár 2011 og lést 5. október sama ár.

Quartz gerir þessa stöðu að umtals­efni. En óhætt er að segja að Apple hafi notið góðs af þeim mögnuðu uppfinningum sem félagið kom á markað á árunum 2008 til 2011, einkum iPhone símunum og iPad spjald­tölvunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár