Nichole segir unnið að því að setja stjórn yfir Landspítalann

Formaður vel­ferð­ar­nefndar gant­ast með áform um að koma stjórn yfir Land­spít­al­ann. Áður hefur hún gert athuga­semdir við að for­stjóri spít­al­ans stundi „póli­tíska bar­áttu“ og „betli pen­ing” af Alþingi.

Nichole Leigh Mosty, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, vill ekki tjá sig um áform þess efnis að setja stjórn yfir Land­spít­al­ann og segir vel­ferð­ar­nefnd ekki koma að mál­inu. 

Í síð­ustu viku birti Nichole færslu á Facebook þar sem hún sagði að á Alþingi væri unnið að því hörðum höndum að hrinda í fram­kvæmd hug­mynd sinni um að setja stjórn yfir LSH. Birti hún mynd af sér ásamt þing­verði sem hélt á plástri og gant­að­ist með að stjórnin yrði „plástur-stjórn”. 

Stundin sendi Nichole fyr­ir­spurn um málið og fékk þau svör að vel­ferð­ar­nefnd væri ekki að vinna að því að setja stjórn yfir Land­spít­al­ann. Aðspurð hvort hún eða þing­flokkur Bjartrar fram­tíðar væru með slíkt þing­mál í und­ir­bún­ingi sagð­ist hún ekki vilja tjá sig um það. 

Nichole greindi frá því á Alþingi þann 24. maí síð­ast­lið­inn að hún hefði beitt sér fyrir því að sett yrði stjórn yfir Land­spít­al­ann svo for­stjór­inn hætti að  stunda „póli­tíska bar­áttu“ og „betla pen­ing” af Alþingi.

„Ég ætla að vera alveg hrein­skilin. Það er ég sem er búin að vera að hlaupa hérna um þing­hús og leggja fram hug­myndir um að setja stjórn yfir spít­al­ann,“ sagði Nichole.

Stjórn­endur Land­spít­al­ans höfðu þá skömmu áður gagn­rýnt stefnu stjórn­valda í heil­brigð­is­málum og leið­rétt rangar full­yrð­ingar stjórn­ar­liða um heil­brigð­is­mál. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár