Nichole vill setja stjórn yfir Landspítalann svo forstjórinn hætti að „betla pening“

Nichole Leigh Mosty, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, sakar for­stjóra Land­spít­al­ans um að stunda „póli­tíska bar­áttu“ og vill setja stjórn yfir Land­spít­al­ann svo orku fag­fólks sé varið í annað en að „betla pen­ing“ af fjár­veit­ing­ar­vald­inu. Þetta við­ur­kenndi hún í umræðum um fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í kvöld.

Nichole vill setja stjórn yfir Landspítalann svo forstjórinn hætti að „betla pening“

Nichole Leigh Mosty, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, við­ur­kennir að hafa beitt sér fyrir því að sett yrði stjórn yfir Land­spít­al­ann til að for­stjóri spít­al­ans hætti að kalla eftir auknum fjár­munum til stofn­un­ar­innar. Þetta kom fram í umræðum um fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar á Alþingi á ell­efta tím­anum í kvöld. 

Stjórn­endur Land­spít­al­ans hafa gagn­rýnt stefnu stjórn­valda í heil­brigð­is­málum harð­lega und­an­farnar vikur og jafn­framt leið­rétt rangar full­yrð­ingar ráð­herra um heil­brigð­is­mál.

„Ég ætla að vera alveg hrein­skilin. Það er ég sem er búin að vera að hlaupa hérna um þing­hús og leggja fram hug­myndir um að setja stjórn yfir spít­al­ann,“ sagði Nichole eftir að Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, spurði hana um til­lögu meiri­hluta fjár­laga­nefndar þess efnis að skipuð verði póli­tísk stjórn yfir Land­spít­al­ann þótt slíkt sé alla jafna ekki venjan hjá A-hluta stofn­unum hins opin­bera. 

„Það er ég sem er búin að vera að hlaupa hérna um þing­hús og leggja fram hug­myndir um að setja stjórn yfir spít­al­ann“

Nichole sagði til­lögu sína ekki setta fram á póli­tískum heldur fag­legum for­sendum. „Að við setjum ein­hvern fag­að­ila í rekstri, til að for­stjóri spít­al­ans þurfi ekki að vera í bar­áttu, í póli­tískri bar­áttu á fundi eftir pen­ing, að hann þurfi ekk­ert að koma hérna niður í þing­hús fimm mín­útur í afgreiðslu fjár­laga til þess að betla pen­ing,“ sagði Nichole.  

Nokkru fyrr hafði Nichole kvartað undan því að Land­spít­al­inn væri „í vörn“ gagn­vart stjórn­völdum. „Einhvern veg­inn er Land­spít­al­inn í vörn,“ sagði hún. „Mín upp­lifun var að ein­hvern veg­inn var ég komin í stöðuga hags­muna­bar­áttu, svona 'he said she said', að vantar meira, við þurfum að gera meira, að þetta er mér erfitt, það þarf ein­hver að stíga inn, gera þetta saman, skil­greina þetta betur svo að það gagn­ist.“

Katrín Jak­obs­dóttir svar­aði Nichole og sagði að Land­spít­al­anum hefði verið snið­inn þröngur stakkur allt frá 2003. Hún velti fyrir sér hvort það væri ekki einmitt þetta sem útskýrði varn­ar­bar­átt­una sem Nichole lýsti. Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­kona VG og full­trúi flokks­ins í fjár­laga­nefnd, furð­aði sig einnig á ummælum Nichole og óskaði eftir frek­ari útskýr­ingum.

Þá ítrek­aði Nichole skoðun sína og sagð­ist ekki vilja að orka stjórn­enda spít­al­ans færi í að krefja Alþingi um aukna fjár­muni til heil­brigð­is­mála. Orku fag­fólks væri betur varið til ann­arra verka. Þá minnt­ist hún sér­stak­lega á reynslu sína frá Banda­ríkj­unum.

„Ég ætla bara að taka það fram að ég kem frá öðru landi. Ég þekki hvorki spít­ala heima hjá mér, hvort sem hann er opin­ber eða einka­væddur, sem er án stjórnar. Þetta er bara mín reynsla, þetta er bara mín þekk­ing. Og þegar ég sé menn að reyna að að reka spít­ala og líka vera í póli­tískri bar­áttu fyrir pen­ing á meðan það er svo gríð­ar­lega mikið, og ég er ekk­ert að tala um allar stofn­anir núna á þessum tíma­punkti þegar það er svo mikið ákall fyrir upp­bygg­ingu í spít­ala , í heil­brigð­is­þjón­ustu og við erum að byggja nýjan spít­ala... þeirra kraftur, þekk­ing og orka á að vera þar.“

Nichole sagð­ist ekki hafa rætt þessi mál við Pál Matth­í­as­son, for­stjóra Land­spít­al­ans. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár