Kennari í Melaskóla um skólastjórann: „Hún stjórnar með harðri hendi og leggur fólk í einelti“

Kennara­uppreisnin í Melaskóla snýst um stjórnunar­hætti Dagnýjar Annasdóttur skóla­stjóra að sögn kennara þar. Dagný er sögð ganga hart fram gegn kennurum. Kennarar hafa hótað að segja upp stöfum hefji hún aftur störf en Dagný er í veikinda­leyfi.

Ástæða þessa að kennarar í Melaskóla leggjast svo hart gegn því að Dagný Annasdóttir skóla­stjóri snúi aftur til starfa úr leyfi sínu er gífurleg óánægja með starfs­hætti hennar. Hún er sögð vanhæf til skóla­starfs, stýri skólanum af vankunnáttu, og sumir kennarar upplifi einelti af hennar höndum. Dagný er sögð hafa stýrt skólanum á máta sem þekkist ekki í öðrum skólum. Hún er jafnframt gagnrýnd fyrir að hafa ekki kynnst börnum sem ganga í skólann líkt og tíðkast meðal skóla­stjóra. Skóla­stjórnun hennar hafi einkennst af stefnu­leysi.

Allt þetta kemur fram í máli kennara við Melaskóla sem þar hefur starfað um árabil. Kennarinn, sem baðst undan því að vera nafn­greindur, segir í samtali við Stundina að óánægja kennara sé mjög almenn, það sé helst þeir kennarar sem nálgist eftirlauna­aldur sem hafi ekki skrifað undir ályktunina. Þeir vilji ekki segja upp störfum þegar svo stutt sé í eftirlaun. Þar með sagt sé ekki sagt að þeir kennarar séu ósammála meirihluta kennara. Þrjátíu  kennarar hafa hótað að segja upp störfum komi Dagný aftur til starfa og er það meirihluti kennara skólans.

Ekki náðist í Dagnýju við vinnslu fréttar en þess má geta að í frétt Vísis í desember neitaði hún alfarið að tjá sig um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár