Apple ætlar að búa til rafmagnsbíl fyrir árið 2020

Hugbúnaðar- og fjarskiptarisinn Apple ætlar að búa til rafmagnsbíl fyrir árið 2020, og hefur þegar sett upp ítarlegt skipulag til þess að fylgja þessum málum eftir. Þetta kemur fram á vefsíðu Bloomberg í dag, en fullyrt er í umfjöllun fjöl­miðilsins að fyrir­tækið hafi unnið með mikilli leynd að hönnun bílsins í nokkurn tíma og að nú sé stefnt á að fyrsti bíllinn verði tilbúinn 2020. Tíma­ramminn sem nú er unnið eftir þykir stuttur, en bíla­fram­leiðendur vinna oftast nær eftir því að nýjar bílar komi á markað sjö árum eftir að vinna við hönnun þeirra hefst.

Ástæðan fyrir því að þetta þykir stuttur tími hjá Apple er sú að fyrir­tækið hefur ekki þá innviði sem bíla­fram­leiðendur eru með innan sinna raða. Að undan­förnu hefur Apple ráðið yfir 60 starfs­menn sem komu að fram­leiðslu Tesla rafmagns­bílsins, og þykir það sýna að fyrir­tækinu sé dauðans alvara með því að skjóta rótum á bíla­markaði með nýjum byltingar­kenndum rafmagnsbíl, sem hefur endingar­gott batterý.

Apple er með fulla vasa fjár um þessar mundir, 178 milljarða Bandaríkja­dala í lausu fé og hagnaðist um 18 milljarða dala á síðasta fjórðungi síðasta árs. Bandaríkja­dalurinn er 130 krónur í augna­blikinu, og nema 178 milljarðar dala rúmlega 23 þúsund milljörðum króna. Það er upphæð sem nemur árlegri lands­framleiðslu Íslands í 12,7 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár