Bein útsending: Hryðjuverkamennirnir umkringdir

Bræðurnir, sem grunaðir eru um fjölda­morðin á ritstjórn skop­mynda­blaðsins Charlie Hebdo, hafa verið umkringdir í bænum Dammartin-en-Goele, sem er skammt frá alþjóða­flug­vellinum Charles De Gaulle. Samkvæmt frönskum frétta­miðlum hefur tveimur flug­brautum verið lokað hjá flug­vellinum, þar sem bannað er að fljúga yfir svæðið þar sem umsátrið ríkir.

Gríðar­lega fjölmennt lið lögreglu hefur umkringt prentsmiðju í bænum, þar sem bræðurnir hafa að minnsta kosti einn einstakling í gíslingu.

Herþyrlur lentu á svæðinu nú fyrir stundu, en gríðar­legur viðbúnaður er á svæðinu, enda bræðurnir álitnir vel vopnaðir og hættu­legir.

Hér fyrir neðan er hægt að fylgjast með umfjöllun Sky frétta­stofunnar af atburðunum.

http://youtu.be/VYlQJbsVs48

Franska frétta­stofan AFP hefur greint frá því að nú séu talin vera tengsl á milli árásarinnar á Charlie Hebdo og annarrar skot­árásar í París í gær, þar sem lögreglu­kona var skotin til bana og maður alvarlega særður. Áður hafði verið sagt að engin tengsl væru á milli árásanna tveggja. Þó er ekki talið að Kouachi bræðurnir hafi komið með beinum hætti að skot­árásinni í gær. Tveir hafa verið hand­teknir vegna seinni árásarinnar, en Reuters greinir frá því að skot­árásar­maðurinn sé meðlimur í sama hryðjuverka­hópi og Kouachi bræðurnir.

Une "connexion" entre les frères Kouachi et le suspect de Montrouge (sources policières) #AFP

— Agence France-Presse (@afpfr) January 9, 2015

AFP hefur einnig birt þessa mynd af lögreglu­manni í umsátrinu.

#CharlieHebdo : Dammartin en état de siège http://t.co/ixyOFhHrvq par @eszeftel & @NGubert_AFP pic.twitter.com/zfKBu4VNOz #AFP — Agence France-Presse (@afpfr) January 9, 2015

Tvær flugvélar, frá Icelandair og Wow, lögðu af stað frá Kefla­víkur­flugvelli áleiðis til Parísar í morgun. Guðjón Arngrímsson, upplýsinga­fulltrúi Icelandair, segir í samtali við Kjarnann að flug­félaginu hafi ekki verið tilkynnt um neinar breytingar á flug­áætlun vélarinnar. Kjarninn náði ekki tali af upplýsinga­fulltrúa Wow-Air í morgun.

Þessi frétt verður uppfærð um leið og nýjar upplýsingar berast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár