Húsleit stendur yfir hjá HSBC í Sviss

Húsleit stendur nú yfir á skrif­stofum HSBC í Genf í Sviss í tengslum við upplýsingar um skatta­skjól. Saksókn­arar segja að verið sé að rannsaka peninga­þvætti.

Rann­sóknin beinist að bankanum en gæti einnig á næstunni beinst að einstaklingum sem eru grunaðir um að hafa tekið þátt í peninga­þvætti.

Rúm vika er liðin frá því að umfangs­mikil gögn um starfsemi bankans komu fyrir sjónir almennings. Í gögnunum sem Herve Falciani, fyrr­verandi starfs­maður bankans, lak til fjöl­miðlar kemur fram að HSBC í Sviss hefði hjálpað ríkum viðskipta­vinum sínum að skjóta peningum undan skatti. Sex viðskipta­vinir bankans sem eru í skjölunum tengdust Íslandi. Falciani hefur boðið íslenskum stjórn­völdum gögnin að kostnaðar­lausu, að sögn Evu Joly.

HSBC birti heilsíðu­auglýsingar í mörgum stórum dagblöðum í Bretlandi um helgina þar sem beðist var afsökunar á málinu.

Franco Morra, banka­stjóri bankans, hefur sagt að búið væri að loka öllum reikningum sem ekki samræmdust miklum kröfum bankans. Gögnin væru áminning um að gamla viðskipta­módelið um einka­banka­þjónustu í Sviss væri ekki lengur ásættanlegt.

Fréttin er í vinnslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár