Karl Gauti sækist eftir embætti framkvæmdastjóra landskjörstjórnar

Tuttugu og tveir sóttu um embætti framkvæmda­stjóra lands­kjör­stjórnar. Þrír umsækjendur hafa dregið umsóknir sínar til baka.

Alls sóttu 22 um embætti framkvæmda­stjóra lands­kjör­stjórnar sem auglýst var laust til umsóknar 3. desember 2021 en umsóknar­frestur rann út 20. desember síðastliðinn. Þrír umsækjendur hafa dregið umsóknir sínar til baka. Lands­kjörstjórn mun skipa í embættið.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnar­ráðsins í dag.

Karl Gauti Hjaltason, fram­bjóðandi fyrir Miðflokkinn í Suðvestur­kjördæmi í síðustu kosningum og fyrr­verandi þingmaður, er einn umsækjenda en hann kærði endur­talningu atkvæða og meðferð þeirra í Norðvestur­kjördæmi til lögreglu í lok september. Karl Gauti er einn þeirra fimm fram­bjóð­enda sem hlaut jöfn­un­ar­þing­sæti eftir að upp­runa­legar loka­tölur í Norð­vest­ur­kjör­dæmi voru kynntar skömmu eftir klukkan sjö að morgni 26. sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Síðar sama dag tók for­maður yfir­kjör­stjórnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi þá ákvörðun að end­ur­telja atkvæð­in, sú end­ur­taln­ing skil­aði nýrri nið­ur­stöðu og fimm­menn­ing­arnir misstu þing­sæti sitt til fimm flokks­fé­laga sinna.

Sjálfstæð stjórnsýslunefnd sett á fót

Með nýjum kosninga­lögum verður sett á fót sjálfstæð stjórn­sýslunefnd sem hefur yfir­umsjón með framkvæmd kosninga til Alþingis og sveitar­stjórna, forseta­kjörs og þjóðar­atkvæða­greiðslna, að því er fram kemur í tilkynningunni.

„Verkefni lands­kjör­stjórnar eru undir­búningur og framkvæmd almennra kosninga, upplýsinga­gjöf og fræðsla til almennings, fram­bjóðenda, fjölmiðla, kjör­stjórna og annarra, samvinna og samráð við viðeigandi aðila um framkvæmd kosninga, kosninga­rannsóknir og framþróun kosninga­framkvæmdar, ráðgjöf til stjórn­valda um kosningar, gerð tillagna að reglu­setningu málefna­sviðsins og alþjóðlegt samstarf á sviði kosninga­mála. Loks er það verkefni lands­kjör­stjórnar að annast samræmingu verklags kjör­stjórna með því að birta fyrirmæli um undir­búning og framkvæmd kosninga. Framkvæmda­stjóri verður forstöðu­maður lands­kjör­stjórnar og hefur umsjón með daglegum störfum hennar,“ segir á vef Stjórnar­ráðsins.

Umsækjendur eru:

  • Anton Helgi Steinarsson, verslunar­stjóri
  • Ástríður Jóhannesdóttir , lögfræðingur
  • Björn Kristjánsson, viðskipta­fræðingur
  • Bogi Agnar Gunnarsson, lögfræðingur
  • Einar Baldvin Stef­ánsson, lögfræðingur
  • Einar Mar Þórðarson, sérfræðingur
  • Gísli M. Auðbergsson, hæstaréttar­lögmaður
  • Guðlaugur Jónasson
  • Hrönn Ingólfs­dóttir, sérfræðingur
  • Jóhann Steinar Ingimundarson, viðskipta­fræðingur
  • Jón Eggert Guðmundsson, líffræðingur og kerfis­stjóri
  • Jón Steindór Valdimarsson, lögfræðingur, MPM
  • Karl Gauti Hjaltason, fyrrv. sýslu­maður og formaður yfir­kjör­stjórnar
  • Katrín Kristjana Hjartar­dóttir, sérfræðingur
  • Kolbrún Garðars­dóttir, lögmaður
  • Salvör Sigríður Jóns­dóttir, lögfræðingur
  • Stefán Örvar Sigmundsson, nefndar­maður
  • Svein­björg Birna Sveinbjörns­dóttir, lögmaður og framkvæmdar­stjóri
  • Vilhjálmur Bergs, lögmaður
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár