Alvogen og Halldór Kristmannsson ná sáttum – Fallið frá málsókn gegn Halldóri

Í upp­hafi árs í fyrra setti fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúi Alvogen fram fjölda ásak­ana á hendur Róberti Wessman, opn­aði heima­síðu og skil­greindi sig sem upp­ljóstr­ara. Nú hefur sátt náðst í mál­inu.

Halldór Kristmannsson og Róbert Wessman.
Halldór Krist­manns­son og Róbert Wessman. Mynd: Samsett

„Í jan­úar 2021 sendi Halldór Krist­manns­son bréf til stjórnar Alvogen, sem inni­hélt fjölda ásak­ana um starfs­hætti Róberts Wessman. Að lok­inni óháðri rann­sókn sér­fræð­inga, stefndi Alvogen Halldóri fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur og átti mál­flutn­ingur að fara fram á haust­mán­uðum. Aðilar hafa náð sáttum í mál­inu og mun Alvogen falla frá mál­sókn­inni. Halldór mun loka heima­síðu sinni og hefur lýst því yfir að hann hafi ekki stöðu upp­ljóstr­ara í neinni lög­sögu. Jafn­framt hefur hann lýst því yfir að hann uni þeirri nið­ur­stöðu stjórnar að lýsa yfir trausti til Róberts í kjöl­far rann­sókn­ar­innar.“

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem Alvogen sendi frá sér í dag. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans fékk Halldór ekk­ert greitt umfram samn­ings­bundnar greiðslur og útlagðan lög­manns­kostnað. Tals­maður fjár­fest­inga­fé­lags Róberts Wessman sagð­ist ekki hafa upp­lýs­ingar um hver heild­ar­upp­hæðin væri.

Halldór var einn nán­asti sam­starfs­maður Róberts Wessman um margra ára skeið. Hann steig fram í upp­hafi árs í fyrra sem upp­ljóstr­ari og lagði fram gögn sem sýna fram á ósæmi­lega hegðun for­stjór­ans yfir margra ára tíma­bil. Stundin greindi frá því sama dag og Halldór steig fram að Róbert hefði reynt að hringja í fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóra Act­a­vis, Mark Keat­ly, eftir að hann bar vitni í máli sem Björgólfur Thor Björg­ólfs­son hafði höfðað meðal ann­ars gegn Róbert. Í kjöl­farið hafi hann sent mann­inum og Claudio Albrecht, fyrr­ver­andi for­stjóra Act­a­vis, alls 33 smá­skila­boð á innan við sól­ar­hring þar sem hann hótað meðal ann­ars að drepa Keatly og að hann myndi vinna þeim og fjöl­skyldu þeirra skaða.

Í yfir­lýs­ingu sem Halldór sendi frá sér í mars 2021 greindi hann meðal ann­ars frá því að hann hefði orðið per­sónu­lega fyrir lík­­ams­árás úr hendi Róberts og orðið vitni af ann­arri, þegar hann var undir áhrifum áfengis á við­­burðum fyr­ir­tæk­is­ins erlend­­is. „Þegar ég síðar nefndi þetta við Róbert sagð­ist hann hafa verið að grín­­ast og við hefðum verið í kýl­inga­­leik. Ég var bein­línis kýldur kaldur í and­litið án fyr­ir­vara í vitna við­­ur­vist. Mér var aug­­ljós­­lega ekki skemmt, og hef ekki orðið var við það almennt séð að for­­stjórar fari í kýl­inga­­leiki við sam­­starfs­­menn,“ sagði Hall­dór í yfir­lýs­ingu sinn­i.

Viku áður hafði stjórn Alvogen sent frá sér yfir­­lýs­ingu þar sem greint var frá því því að kvartað hefði verið yfir hegðun Róberts. Þar sagði að óháð nefnd hefði verið sett á fót til að kanna inn­i­hald kvört­un­­ar­innar og Róbert sagt sig frá störfum fyrir Alvogen á meðan að sú athugun fór fram.

Vildi starfið sitt aftur og að Róbert yrði rekinn

Erlend lög­fræði­stofa, White & Case, var fengin til að fara yfir kvart­­anir Hall­­dórs og íslenska lög­­­manns­­stofan Lex veitti ráð­­gjöf. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans hafði erlenda lög­fræði­stofan unnið áður fyrir Alvogen og suma eig­endur þess. Rann­­sóknin stóð yfir í átta vikur og sam­kvæmt yfir­lýs­ingu Alvogen var nið­ur­staðan sú að efni kvart­anna ætti sér enga stoð. „Ekk­ert bend­ir til þess að starfs­hætt­ir Rób­erts Wessman séu þess eðl­is sem greint er frá í bréf­in­u og eng­in á­stæð­a er til þess að að­haf­­­ast neitt vegn­a þess­a máls.“

Þessu hafn­aði Halldór Krist­manns­son og gagn­rýndi úttekt­ina. Hann bauð sátt í deil­unum í gegnum banda­ríska lög­manns­stofu í mars í fyrra. Í því sátt­ar­boði fólst að hann vildi fá gamla starfið sitt aftur og að Róberti yrði gert að víkja sem for­stjóra Alvogen. Á móti myndi Hall­dór falla frá öllum fjár­kröfum sem hann gæti átt á hendur Alvogen eða Alvot­ech og skrifa undir trún­að­ar­sam­komu­lag. Þessu til­boði var hafnað.

Í til­kynn­ingu sem Halldór sendi frá sér 7. apríl 2021 greindi han nfrá því að full­trúar Alvogen hefðu verið setið fyrir honum „fyrir utan World Class í Smára­lind, með upp­sagn­ar­bréf og stefnu, þar sem fyr­ir­tækin hyggj­ast freista þess að fá lög­mæti upp­sagn­ar­innar stað­festa fyrir Hér­aðs­dómi. Stjórnum fyr­ir­tækj­anna virð­ist ein­fald­lega vera ofviða að fram­kvæma óháða rann­sókn á stjórn­ar­for­manni, for­stjóra og sínum stærsta hlut­hafa, eða aðhaf­ast nokkuð yfir höfuð þegar Róbert er ann­ars veg­ar.“

Halldór setti á fót heima­síðu í lok apríl í fyrra þar sem hann rakti sögu sína sem upp­ljóstr­ara. Samkvæmt sam­komu­lag­inu sem nú liggur fyrir verður sú síða tekin niður. Hún er þó enn sem komið er enn í loft­inu. Hana er hægt að sjá hér.

Deilur sem teygðu sig inn í fjölmiðla

Deilur milli Halldórs og Róberts teygðu sig inn í íslenska fjöl­miðla. Halldór greindi frá því í fyrra að hann hefði verið beittur óeðli­­legum þrýst­ingi til að koma höggi á óvild­­ar­­menn Róberts, sem hann bar þungum sök­­um, í fjöl­miðlum sem Róbert kom að fjár­mögnun á. Þar var meðal ann­ars um að ræða fjöl­miðla á vegum Birtings sem voru um tíma í eigu Halldórs en fjár­magn­aðir af Róberti. Hall­dór sagð­ist hafa talið „fulla ástæðu til þess að setja fót­inn niður og tjáði Róbert ítrek­að, að ég myndi ekki beita mér fyrir því að koma höggi á umrædda aðila í fjöl­miðlum og vega bein­línis að æru og mann­orði þeirra, eins og hann vildi. Ég var um tíma útgef­andi Mann­lífs, sem Róbert fjár­­­magn­aði og átti, en þar mynd­að­ist til að mynda mik­ill ágrein­ingur um rit­­stjórn­­­ar­­stefnu og sjálf­­stæði. Úr þessu skap­að­ist vax­andi ósætti okkar á milli, sem gerði það að verkum að ég steig nauð­beygður til hliðar tíma­bund­ið, og upp­­lýsti stjórnir fyr­ir­tækj­anna um mála­vext­i. Ég vil standa vörð um ákveðin sið­­ferð­is­­leg gildi, og lét því ekki hagga mér í þessum mál­u­m.“

Í jan­úar 2022 sendi upp­lýs­inga­full­trúi Róberts svo frá sér yfir­lýs­ingu um að félag í eigu Hall­dórs væri að greiða félag­inu sem á Mann­líf tugi millj­óna króna fyrir að halda úti níð­skrifum um Róbert. „Frá því í jan­úar árið 2021, eða allt frá því að fyrrum sam­starfs­fé­lagi Róberts Wess­man, Hall­dór Krist­manns­son, lét af störfum hjá Alvogen, hefur Mann­líf skrifað hátt í 70 greinar um Róbert og félög honum tengd í þeim til­gangi einum að rýra trú­verð­ug­leika hans sem og þeirra félaga sem hann stýrir [...] Þess ber að geta að Mann­líf var áður í eigu Hall­dórs Krist­manns­son­ar.“

Reynir Trausta­son, rit­stjóri og aðal­eig­andi Mannlífs, opin­ber­aði í kjöl­farið að hann væri að skrifa bók um Róbert og að Hall­dór Krist­manns­son hafi aðstoðað hann við upp­lýs­inga­öfl­un. „Heim­ild­ar­bókin er og verður fjár­mögnuð af Hall­dóri og sér­stak­lega verður greint frá þessum tengslum við útgáf­una og þann fjár­hags­stuðn­ing sem því teng­ist,“ sagði í frétt á Mannlífi.

Róbert kærði Reyni í kjöl­farið til siða­nefndar Blaða­manna­fé­lags Íslands sem hefur nú ítrekað kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Reynir hafi gerst sekur um alvar­legt siða­reglu­brot með því að skrifa um Róbert en þiggja fjár­muni frá Halldóri á sama tíma. Hann hafi verið van­hæfur til þess í ljósi fjár­hags­legs sam­bands hans við Halldór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár