Setið fyrir Halldóri fyrir utan World Class með uppsagnarbréf og stefnu

Halldór Krist­manns­son segir að sú aðferð Alvogen og Alvotech að skjóta sendi­boð­ann en hvít­þvo Róbert Wessman kunni að skaða orð­spor fyr­ir­tækj­anna tveggja. Málið hafi vakið athygli erlendis, meðal ann­ars hjá sam­starfs­að­ilum fyr­ir­tækj­anna.

Halldór Kristmannsson og Róbert Wessman.
Halldór Krist­manns­son og Róbert Wessman. Mynd: Samsett

Halldór Krist­manns­son, einn nán­asti sam­starfs­maður Róberts Wessman til 18 ára, seg­ist hafa verið beittur for­dæma­lausri hörku fyrir að hafa gerst upp­ljóstr­ari og sagt frá hegðun Róberts, for­stjóra Alvogen og Alvotech, sem fól meðal ann­ars í sér morð­hót­anir.

Halldór, sem var upp­lýs­inga­full­trúi og síðar fram­kvæmda­stjóri hjá sam­stæð­unni, sendi frá sér til­kynn­ingu í morgun.

Þar segir hann að sama dag og Alvogen sendi frá sér yfir­lýs­ingu um að stjórn fyr­ir­tæk­is­ins bæri fullt traust til Róberts eftir rann­sókn sem fram­kvæmt var vegna kvört­unar Halldórs, hafi verið setið fyrir honum. Sú harka sem sé hlaup­inn í málið sé með ólík­indum. „Sama dag og nafni mínu er lekið í fjöl­miðla og til­kynnt um „hvít­þott­inn“, þá er setið fyrir mér fyrir utan World Class í Smára­lind, með upp­sagn­ar­bréf og stefnu, þar sem fyr­ir­tækin hyggj­ast freista þess að fá lög­mæti upp­sagn­ar­innar stað­festa fyrir Hér­aðs­dómi. Stjórnum fyr­ir­tækj­anna virð­ist ein­fald­lega vera ofviða að fram­kvæma óháða rann­sókn á stjórn­ar­for­manni, for­stjóra og sínum stærsta hlut­hafa, eða aðhaf­ast nokkuð yfir höfuð þegar Róbert er ann­ars vegar.“

Morðhótanir og misnotkun á fjölmiðlum

Áður­nefnd yfir­lýs­ing Alvogen var send út til fjöl­miðla 23. mars síð­ast­lið­inn. Þá var málið ekki á vit­orði margra og lítið kom fram í henni annað en að „óháð úttekt“ hefði sýnt að engin gögn bentu til þess að eitt­hvað væri athuga­vert við stjórn­ar­hætti Róberts sem for­stjóra fyr­ir­tækj­anna tveggja. „Nið­ur­stað­an er skýr og ljóst að efni kvart­an­ann­a á sér enga stoð. Ekkert bend­ir til þess að starfs­hætt­ir Rób­erts Wess­man séu þess eðl­is sem greint er frá í bréf­in­u og eng­in á­stæð­a er til þess að að­haf­ast neitt vegn­a þess­a máls.“

Halldór steig svo fram í síð­ustu viku, sagð­ist vera upp­ljóstr­ar­inn í mál­inu og greindi frá inni­haldi kvört­unar sinnar til stjórnar Alvogen. Stundin greindi frá því sama dag að Róbert hefði reynt að hringja í fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóra Actavis, Mark Keatly, eftir að hann bar vitni í máli sem Björgólfur Thor Björg­ólfs­son hafði höfðað meðal ann­ars gegn Róbert. Í kjöl­farið hafi hann sent mann­inum og Claudio Albrecht, fyrr­ver­andi for­stjóra Actavis, alls 33 smá­skila­boð á innan við sól­ar­hring þar sem hann hótað meðal ann­ars að drepa Keatly og að hann myndi vinna þeim og fjöl­skyldu þeirra skaða.

Róbert hefur geng­ist við því að hafa sent skila­boðin og upp­lýs­inga­full­trúi hans, Lára Ómars­dóttir, sagði við fjöl­miðla að hann hafa beðist afsök­unar á þeim og sjái eftir að hafa sent skila­boðin. Þau hafi verið send úr flug­vél.

Halldór sagði einnig að Róbert hefði beitt sig allskyns óeðli­legum þrýst­ingi til að koma höggi á meinta óvild­ar­menn sína, meðal ann­ars í gegnum fjöl­miðla sem þeir fjár­mögn­uðu. Kjarninn greindi frá því 29. mars að einn þeirra væri Haraldur Johann­es­sen, fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri, en Róbert hafði tapað dóms­máli gegn syni Haraldar.

Gæti skaðað orðspor

Í til­kynn­ingu sinni í dag segir Halldór, sem er hlut­hafi í fyr­ir­tækj­unum, að hann hafi tals­verðar áhyggjur af aðgerð­ar­leysi Alvogen og Alvotech í mál­inu og að það kunni að skaða orð­spor fyr­ir­tækj­anna tveggja. „Málið hefur vakið nokkra athygli erlendis á meðal sam­starfs­að­ila, við­skipta­vina og fjár­festa, sem hafa sumir hverjir sett sig í sam­band við mig. Umræddir aðilar hafa eðli­lega borið upp spurn­ingar og lýst áhyggjum af þróun mála.

Sama á við um íslenska fjár­festa, sem komu nýlega að fjár­mögnun Alvotech, og aðra sem hafa hags­muna að gæta hér á landi. Ég vill því stíga fram og ítreka sátta­hug og vel­vilja í garð fyr­ir­tækj­anna og sam­starfs­manna. Slík sátt setur hags­muni fyr­ir­tækj­anna í for­gang og felur í sér að óháðir stjórn­ar­menn taki hæfi Róberts til alvar­legrar skoð­unar. Auðmýkt, virð­ing og almenn skyn­semi, er það eina sem þarf til að ljúka þessu máli, með far­sælum hætti.“

Hann segir að sú aðferð sem beitt hefur verið hingað til að hálfu Alvogen og Alvotech, sem felur í sér að hans mati að skjóta sendi­boð­ann og hvít­þvo Róbert Wessman, sé til þess fallin að rýra trú­verðu­leika stjórn­ar­manna og hlut­hafa, og geti að óbreyttu skaðað orð­spor fyr­ir­tækj­anna til fram­tíðar. „Ég hef enn ekki fengið neina nið­ur­stöðu um rann­sókn, enda hef ég ástæðu til að efast um að ein­hver rann­sókn­ar­skýrsla hafi yfir höfuð verið gerð. Mér var mein­aður aðgangur að vinnu­gögnum, til að aðstoða við rann­sókn­ina, og frá byrjun var ljóst að lög­fræði­stof­unni White & Case, var falið að „hvít­þvo“ Róbert. Enn og aftur, virð­ist stjórn Alvogen ætla að horfa fram hjá kvört­unum um ósæmi­lega hegðun Róberts.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár