„Framsóknarmenn gerðu risastór mistök í dag“

Líkingamál Vigdísar Hauks­dóttur vekur athygli: Segir að „því miður“ sé litla gula hænan enn á lífi.

Vigdís Hauks­dóttir, þingkona Framsóknar­flokksins og formaður fjár­laganefndar Alþingis, segir að litla gula hænan lifi enn góðu lífi. Þetta myndmál er að finna í Facebook-færslu sem hún birti í kvöld en þar gerir hún formanns­kjörið á flokks­þingi Framsóknar­flokksins að umtals­efni. Eins og Stundin greindi frá í dag bar Sigurður Ingi Jóhannsson forsætis­ráðherra sigurorð af Sigmundi Davíð Gunnlaugs­syni, formanni flokksins til sjö ára.

„Fram­sóknarmenn gerðu risastór mistök í dag á flokks­þinginu. Það hefur aldrei reynst vel að skreyta sig með stolnum fjöðrum. Litla gula hænan lifir góðu lífi - því miður,“ skrifar Vigdís.

Líkinga­málið hefur vakið talsverða athygli á samfélags­miðlum. Sem kunnugt er fjallar umrædd dæmisaga um litla gula hænu sem biður önnur dýr um hjálp við uppskeru, þreskingu, mölun og bakstur án árangurs. Dýrin reynast hins vegar viljug til að borða það sem hænan bakar, en hún neitar þeim réttilega um það. 

Vigdís Hauks­dóttir tekur undir lofgjörð Guðfinnu Jóhönnu Guðmunds­dóttur, borgar­fulltrúa Fram­sóknar og flugvallar­vina, um Sigmund Davíð.

„Mikið rosalega er dapurt að sjá hvernig fólkið sem virðist lifa fyrir það eitt að skíta aðra út til að reyna upphefja sig sjálft ræðst á þann einstakling sem barðist fyrir þjóðina gegn Icesave, kom skulda­leið­réttingunni í gegn fyrir heimilin í landinu og tók slaginn við kröfuhafa föllnu bankanna og hafði þannig betur gegn fjármála­öflunum,“ skrifar Guðfinna og bætir við: „Barátta hans, kjarkur og þor skilaði nokkur hundruð milljörðum í ríkis­kassann og því er nú hægt að bæta kjör fólksins í landinu og m.a. byggja nýjan spítala. Kjör fólksins í landinu verða nefnilega ekki bætt með umræðu­stjórunum á feisbúkk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár