ESB hefur rannsókn á skattamálum McDonald´s í Lúxemborg

Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins (ESB) hefur staðfest að formleg rannsókn sé hafin á skatta­samningum milli Lúxemborg og alþjóð­lega skyndibitarisans McDonald´s. Rann­sóknin snýr að því hvort samkomu­lagið sé svo hagstætt McDonald´s að í því felist ríkis­styrkur frá Lúxemborg.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem skattamál McDonald´s í Lúxemborg eru til rann­sóknar. Fyrir tveimur árum rann­sökuðu frönsk yfirvöld þau og fyrr á þessu ári sendi hópur verkalýðs­félaga frá sér mjög gagnrýna skýrslu um skattamál McDonald´s, sem er stærsta skyndibita­keðja Evrópu.

Samkvæmt frétt the Guardian um málið kom fram í skýrslunni að félagið McD Europe Franchising Sarl, sem er staðsett í Lúxemborg og tilheyrir McDonald´s samstæðunni, hafi fengið um 834 milljónir evra, 117 milljarða króna, í þóknanir árið 2013 þrátt fyrir að vera einungis með þrettán starfs­menn. Í skýrslunni var einnig bent á að skipulag samstæðu McDonald´s í Evrópu hafi verið breytt árið 2009 og höfuð­stöðvar þess færðar frá Bretlandi til Genf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár