Frosti kominn í leyfi frá Stöð 2, stjórn SÁÁ og hefur vikið úr stjórn Blaðamannafélagsins

Frosti Logason, sjón­varps­mað­ur á Stöð 2 er kominn í leyfi frá störfum þar og framkvæmda­stjórn SÁÁ. Þá varð hann síðdegis við ósk stjórnar Blaðamanna­félags Íslands um að víkja úr stjórninni. Frosti gekkst í gær við því að hafa hót­að að birta nekt­ar­mynd­ir af fyrr­ver­andi kær­ustu, Eddu Pét­urs­dótt­ur eftir að hún steig fram í þætt­in­um Eig­in Kon­ur.

Frosti Logason, dagskrár­gerðarmaður í þættinum Íslandi í dag óskaði sjálfur eftir því að fara í leyfi frá störfum. Mbl greinir frá þessu. Þórhallur Gunnarsson framkvæmda­stjóri Miðla hjá Sýn stað­festir við Stundina að Frosti sé kominn í ótíma­bundið leyfi frá störfum. Þórhallur segist ekki hafa tekið ákvörðun um fram­haldið. 

Frosti hefur einnig verið í níu manna framkvæmda­stjórn SÁÁ en er kominn í leyfi þar líka að sögn Önnu Hildar Guðmunds­dóttur formanns SÁÁ. Hún segir að Frosti hafi haft samband við hana í morgun og óskað eftir að fara í leyfi frá stjórnar­störfum fyrir samtökin.  

Frosti var þar til síðdegis í stjórn Blaðamanna­félags Íslands en Sigríður Dögg Auðuns­dóttir formaður Blaðamanna­félagsins sagði í samtali við Stundina að stjórnin hefði rætt saman í dag og komist að einróma niður­stöðu um málið. ,,Stjórnin var sammála um að óska eftir því við Frosta að hann viki úr stjórn Blaðamanna­félagsins og hann varð við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Öfgar Sóley og Edda takk.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár