Óttast að samkeppni í vopnaflutningum verði erfiðari

Air Atlanta segir að ný reglu­gerð geri sam­keppn­is­hæfni flug­fé­lags­ins verri þegar kemur að flutn­ingi her­gagna í íslenskum flug­vélum.

Flug­fé­lagið Air Atlanta ótt­ast að tapa sam­keppn­is­hæfni þegar kemur að flutn­ingi her­gagna verði máls­með­ferð­ar­tími Flug­mála­stjórnar á beiðnum um slíkt lengdur. Þetta kemur fram í umsögn félags­ins um drög að reglu­gerð um flutn­ing her­gagna með loft­förum.

Í drög­unum er máls­með­ferð­ar­tím­inn lengdur úr 7 dögum í 14 daga. „Þessi lengdi máls­með­ferð­ar­tími hefur áhrif á sam­keppn­is­hæfni félags­ins þegar kemur að flutn­ingi her­gagna, enda koma slík til­vik oft­ast nær upp með skömmum fyr­ir­vara og við­skipta­vinir félags­ins treysta á skjót við­brögð við slíkum beiðnum,“ segir í umsögn flug­fé­lags­ins. Þess er farið á leit að tímara­mm­anum verði ekki breytt.

Í drög­unum er lagt til að reglu­gerðin nái til bæði flutn­ings her­gagna um íslenskt yfir­ráða­svæði og með íslenskum loft­förum hvar sem þau eru stödd. Þá er nánar skil­greint hvað telj­ist her­gögn. Loks er mælt fyrir um í hvaða til­vikum beri að hafna umsókn um leyfi til flutn­inga her­gagna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár