Tólf sækja um embætti forstjóra Umhverfisstofnunar

Mun valnefnd meta hæfni og hæfi umsækjenda og skila greinar­gerð til umhverfis- og auðlinda­ráðherra.

Tólf umsækjendur sóttu um embætti forstjóra Umhverfis­stofnunar. Umhverfis- og auðlinda­ráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar þann 12. október síðastliðinn en umsóknar­frestur var til 28. október. Mun valnefnd meta hæfni og hæfi umsækjenda og skila greinar­gerð til umhverfis- og auðlinda­ráðherra.

Þetta kemur fram í frétt Stjórnar­ráðsins í dag.

Guðmund­ur Ingi Guðbrands­son um­hverf­is- og auðlinda­ráðherra setti Sigrúnu Ágústs­dótt­ur, sviðs­stjóra hjá Um­hverf­is­stofn­un, til að gegna tíma­bundið embætti for­stjóra Um­hverf­is­stofn­un­ar fram að skip­un nýs for­stjóra, eða allt fram að 1. mars á næsta ári.

Krist­ín Linda Árna­dótt­ir var í byrj­un októ­ber ráðin aðstoðarfor­stjóri Lands­virkj­un­ar en hún hafði verið for­stjóri Um­hverf­is­stofn­un­ar frá ár­inu 2008.

Umsækjendur eru:

  • Aðalbjörg Birna Guttorms­dóttir, verkefnis­stjóri
  • Áslaug Eir Hólm­geirsdóttir, sviðs­stjóri
  • Hlynur Sigur­sveinsson, fv. sviðs­stjóri
  • Hörður Valdimar Haraldsson, framtíðar­fræðingur
  • Jóna Bjarna­dóttir, forstöðu­maður
  • Kristján Geirsson, verkefnis­stjóri
  • Kristján Sverrisson, forstjóri
  • Magnús Rannver Rafnsson, verk­fræðingur
  • Maríanna Hugrún Helga­dóttir, framkvæmda­stjóri
  • Sigrún Ágústs­dóttir, sviðs­stjóri
  • Soffía Guðmunds­dóttir, framkvæmda­stjóri
  • Svavar Halldórsson, sjálf­stæður markaðs­ráðgjafi
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár