Kjartan Bjarni framkvæmir úttekt á málum Braga

Að til­lögu Katrínar Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra, hefur verið ákveðið að fram fari óháð úttekt á til­teknum málum á sviði barna­verndar hér á landi, sem verið hafa til umfjöll­unar í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu og hjá vel­ferð­ar­nefnd Alþingis.

Kjartan Bjarni Björg­vins­son hér­aðs­dóm­ari mun með lið­sinni Krist­ínar Bene­dikts­dóttur dós­ent við laga­deild Háskóla Íslands fram­kvæma óháða úttekt á málum Braga Guð­brands­sonar og sam­skiptum hans við barna­vernd­ar­nefndir Reykja­víkur og Hafn­ar­fjarðar.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ákvað að þessi úttekt færi fram en hún er unnin að ósk Ásmundar Einars Daða­sonar félags­mála­ráð­herra.

Í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu kemur fram að í úttekt­inni verði farið yfir fyr­ir­liggj­andi gögn máls­ins og máls­með­ferð við­kom­andi stjórn­valda, það er þeirra barna­vernd­ar­nefnda sem tengj­ast við­kom­andi málum, Barna­vernd­ar­stofu og vel­ferð­ar­ráðu­neytis.

Nið­ur­staða úttekt­ar­innar mun liggja fyrir í byrjun júní. Henni verður skilað til rík­is­stjórnar og í kjöl­farið birt opin­ber­lega.

Stundin birti á föstu­dag umfjöllun þar sem fram kom að Bragi hafi beitt sér fyrir því að maður fengi að umgang­­ast dætur sínar sem hann var grun­aður um kyn­­ferð­is­brot gegn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár