Íbúar Berlínar slegnir yfir atburðum kvöldsins

Níu látnir og fimmtíu særðir eftir að flutningabíl var ekið inn á jóla­markað.

Markaðurinn
Mark­að­ur­inn Jóla­mark­að­ur­inn við Breitscheid­tplatz er nærri aðal­versl­un­ar­götu borg­ar­innar – Kurfürstendamm – í vest­ur­hluta borg­ar­innar.

Að minnsta kosti níu eru látnir og fimmtíu særðir eftir að vörubíl var keyrt inn á jóla­markað í Berlín, höfuðborg Þýska­lands, fyrr í kvöld. Lögreglan telur að þetta hafi verið með vilja gert frekar en að slys hafi átt sér stað. Sjónar­vottar lýsa atburðinum þannig að flutninga­bílnum hafi verið ekið á fullum hraða inn í mannhafið með þeim afleiðingum að fjölmargir urðu undir. Tveir menn voru í bílnum og er annar þeirra á meðal hinna látnu en hinn hefur verið hand­tekinn.

Jóla­markaðurinn við Breitscheid­tplatz er nærri aðal­verslunar­götu borgarinnar – Kurfürstendamm – í vestur­hluta borgarinnar. Markaðurinn er einn af helstu áfanga­stöðum þeirra ferða­manna sem heimsækja borgina á þessum árstíma. Þá sækja fjölmargir Berlínar­búar markaðinn árlega. Íbúar borgarinnar eru margir hverjir mjög slegnir.

Lögreglan hefur biðlað til borgarbúa að halda sig fjarri svæðinu þar sem sjúkra­bílar þurfi að hafa greiðan aðgang. Michael Müller, borgar­stjóri Berlínar, segir lögregluna nú hafa fulla stjórn á aðstæðum. Lögreglan hefur greint frá því að flutninga­bíllinn sé á pólskum númerum og í eigu pólsks flutninga­fyrirtækis. Hann hafi haldið af stað til Berlínar frá Póllandi fyrr í dag eða þar til fyrir­tækið missti samband við bílstjórann um fjögur leytið að staðar­tíma. Talið er mögulegt að bílnum hafi verið stolið á þeim tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár