Áttatíu og sex prósent vilja að Ísland fullgildi samning um bann við kjarnorkuvopnum

Samkvæmt nýrri könnun frá YouGov eru ein­ungis þrjú pró­sent Íslend­inga fylgj­andi þeirri stefnu íslenskra stjórn­valda að fylgja stefnu NATÓ um að skrifa ekki undir samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um bann gegn kjarn­orku­vopnum. Samn­ing­ur­inn tekur gildi í dag.

Mynd frá Hiroshima í Japan, tekin nokkrum mánuðum eftir að kjarnorkusprengju var varpað á borgina árið 1945.
Mynd frá Hiros­hima í Japan, tekin nokkrum mán­uðum eftir að kjarn­orku­sprengju var varpað á borg­ina árið 1945. Mynd: Þjóðskjalasafn Bandaríkjanna

Einungis um þrjú pró­sent Íslend­inga eru hlynnt núver­andi stefnu íslenskra stjórn­valda um að skrifa ekki undir samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um bann við kjarn­orku­vopnum, sem tekur gildi í dag í kjöl­far þess að 50 ríki heims hafa full­gilt samn­ing­inn.

Um 86 pró­sent lands­manna vilja að Ísland ger­ist aðili að samn­ingum og um 75 pró­sent lands­manna telja að Ísland ætti að verða eitt fyrsta ríki Atl­ants­hafs­banda­lags­ins til þess að taka það skref, þrátt fyrir að Banda­ríkja­menn myndu beita þrýst­ingi gegn því.

Svipuð niðurstaða í fleiri ríkjum Atlantshafsbandalagsins

Þessar nið­ur­stöður eru úr nýrri könnun sem YouGov fram­kvæmdi fyrir ICAN, þrýsti­hóp um útrým­ingu kjarn­orku­vopna, í sex ríkjum Atl­ants­hafs­banda­lags­ins; Íslandi, Belgíu, Danmörku, Ítalíu, Hollandi og Spáni.

Nið­ur­stöður í hinum ríkj­unum fimm hvað áður­nefnd atriði varðar eru keim­líkar. Vilji er hjá almenn­ingi til þess að þessi NATÓ-ríki und­ir­riti og full­gildi samn­ing­inn og yfir­gnæf­andi meiri­hluti í öllum ríkj­unum telur rétt að taka það skref þrátt fyrir vænta and­stöðu Banda­ríkj­anna.

NATÓ, með Banda­ríkin í far­ar­broddi, hefur gagn­rýnt samn­ing­inn á und­an­förnum árum, en hann var fyrst kynntur til sög­unnar árið 2017.

Þann 24. októ­ber 2020 full­gilti Hondúras samn­ing­inn og varð 50. ríkið til þess að gera það. Því er samn­ing­ur­inn að öðl­ast form­lega við­ur­kenn­ingu nú. Í dag skora 22 íslensk félaga­sam­tök á stjórn­völd að full­gilda samn­ing­inn.

Í áskor­un­inni eru stjórn­völd hvött til þess að veita vilja almenn­ings vægi. „Aðild Íslands að samn­ingnum er nauð­syn­leg til að stuðla að vernd almennra borg­ara, líf­ríkis og nátt­úru til fram­tíðar og styrkja enn fremur stöðu þeirra alþjóð­legu samn­inga um kjarn­orku­vopn sem Ísland á nú þegar aðild að. Með und­ir­ritun og full­gild­ingu samn­ings­ins er fyllt upp í mik­il­vægar eyður sem fyrri samn­ingar hafa ekki kveðið á um,“ segir í áskor­un­inni.

ICAN-hreyf­ingin fékk árið 2017 frið­ar­verð­laun Nóbels fyrir bar­áttu sína gegn kjarn­orku­vopna­lausum heimi.

Íslensku samtökin 22 sem skora á stjórnvöld í dag eru eftirfarandi:

Alda félag um sjálf­bærni og lýð­ræði, Alþýðu­sam­band Íslands, Íslands­deild Amnesty International, Barna­heill, Bisk­ups­stofa, Hjálp­ar­starf kirkj­unnar, Húman­ista­hreyf­ingin, Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands, Lands­sam­band slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna, Lands­sam­tökin þroska­hjálp, Lækna­fé­lag Íslands, Mann­rétt­inda­skrif­stofa Íslands, Menn­ingar- og frið­ar­sam­tök íslenskra kvenna, Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands, Rauði kross­inn á Íslandi, Samtök hern­að­ar­and­stæð­inga, Samtökin 78, Siðmennt, Soka Gakkai International á Íslandi, UNICEF á Íslandi, UN Women á Íslandi og Öryrkja­banda­lag Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár