Fjárlög samþykkt með minnihluta á Alþingi

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, sagði þing­menn hafa sýnt ábyrgð í verki með því að klára erfið mál þrátt fyrir snúna stöðu, mitt í stjórn­ar­kreppu.

Fjár­lög fyr­ir árið 2017 voru sam­þykkt seint í gær­kvöldi á Alþingi með 27 at­kvæðum, en 33 þing­menn greiddu ekki at­kvæði. Þar með voru fjár­lög­ sam­þykkt með aðeins 43 pró­sent at­kvæða þing­manna.

Stein­grím­ur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is, sagði við lok þings­ins að af­greiðsla fjár­lag­anna hefði sýnt styrk þings sem hefði starfað með ábyrgum hætti þrátt fyrir sér­stakar aðstæður, en engin rík­is­stjórn hefur enn verið mynduð eftir rík­is­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar féll í kosn­ing­unum 29. októ­ber síð­ast­lið­inn. 

Á meðal mála sem kláruð voru á síð­ustu metr­unum, var líf­eyr­is­málið svo­nefnda. Alþingi sam­þykkti í kvöld frum­varp sem ætlað er að jafna líf­eyr­is­rétt­indi á almennum og opin­berum vinnu­mark­aði þrátt fyrir að skiptar skoð­anir væru um það í þing­inu.

Af 63 þing­mönnum greiddu 38 frum­varp­inu atkvæði sitt, fjórtán sögðu nei og átta sátu hjá.

Nokkrir þing­menn gerðu grein fyrir atkvæðum sínum og gagn­rýndu flýti við afgreiðslu frum­varps­ins. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna sagði að slæmt væri að gera við­líka kerf­is­breyt­ingar með hraði, en Vinstri græn lögð­ust gegn frum­varp­inu. Þá væri umhugs­un­ar­efni hversu miklar deilur séu um það bæði innan þings og utan.

Megin til­gangur frum­varps­ins er að jafna eft­ir­launa­rétt á almennum og opin­berum vinnu­mark­aði, en mikil and­staða er við málið á meðal opin­bera starfs­manna sér­stak­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár