Gildi kaupir fyrir 3,3 milljarða í Arnarlaxi

Mikil sókn er í laxeldi hér á landi, en umfang þess hefur tífaldast á síðustu fimm árum. Lífeyris­sjóðurinn Gildi tilkynnti í dag fyrir­hugaða fjár­festingu í stærsta laxeldis­fyrirtæki landsins upp á 3,3 milljarða.

Sjókvíar á Vestfjörðum
Sjókvíar á Vest­fjörðum Mynd: Arnarlax

Lífeyris­sjóðurinn Gildi verður einn af hornsteina­fjárfestum laxeldis­fyrir­tækisins Arnarlax með 3,3 milljarða króna fjár­festingu. Arnarlax er stærsta laxeldis­fyrirtækið á Íslandi, en umfang greinarinnar hefur stóraukist á síðustu fimm árum samkvæmt nýútgefnum tölum frá Hagstofunni.

Samkvæmt frétt Frétta­blaðsins í morgun verður Gildi, ásamt sjóði á vegum Arion banka og norska einka­fjár­festinum Edvin Austbø hornsteina­fjárfestar fyrir­tækisins í hlutafjár­útboði þess, sem hófst í morgun og lýkur á morgun. Gildi mun fjárfesta fyrir um 3,3 milljarða króna, á meðan fjár­festing sjóðs Stefnis, sjóðs­stýringa­fyrirtækis Arion banka, mun nema 1,5 milljörðum króna og Austbø mun leggja til hálfan milljarð króna.

Miðillinn Bæjarins Besta fjallaði einnig um málið, en samkvæmt honum stefnir félagið svo á skráningu á Merkur-markaðnum í kaup­höllinni í Osló að útboðinu loknu. Frétta­blaðið segir að Merkur-markaðurinn höfði til breiðari hóps fagfjárfesta en NOTC-listinn, sem Arnarlax er nú skráður á í norsku kaup­höllinni.

Samkvæmt tölum sem birtust á vef Hagstofunnar í morgun voru um 27 þúsund tonn framleidd af laxi í fyrra, og er það tvöfalt meira en árið á undan. Laxeldi hefur aukist mjög hratt á undan­förnum fimm árum, en árið 2015 voru einungis rúmlega þrjú þúsund tonn af laxi framleidd hér á landi.

Tíföldun á fimm árum

Samkvæmt Einari K. Guðfinns­syni, sem vinnur að fisk­eldismálum fyrir Samtök fyrir­tækja í sjávar­útvegi, er búist við um 32 þúsund tonna fram­leiðslu í ár, sem yrði tífalt meira en framleitt magn fyrir fimm árum síðan.

Samkvæmt áhættu­mati Hafrannsóknarstofnunar geta firðirnir þar sem fiskeldi er heimilað þó borið allt að þrefalt meira magn en það, eða um 106 þúsund tonn.

Arnarlax er í dag stærsta fiskeldis­fyrirtæki á Íslandi og sér um laxeldi á Vestfjörðum. Hjá félaginu starfa yfir 100 manns á Bíldudal, Hafnar­firði, Þorláks­höfn og Bolungarvík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár