Bjargvættur byggða eða skaðræði í sjónum?

Á meðan annar tal­aði um sjó­kvía­eldi sem mik­il­væga við­bót við atvinnu­líf á Vest­fjörðum tal­aði hinn um að litið yrði á það og annan verk­smiðju­bú­skap sem einn versta glæp mann­kyns innan fárra kyn­slóða.

Sjókvíaeldi hefur verið lyftistöng fyrir atvinnulífið á Vestfjörðum að sögn Einars en Jón Kaldal segir það á kostnað lífríkisins.
Sjó­kvía­eldi hefur verið lyfti­stöng fyrir atvinnu­lífið á Vest­fjörðum að sögn Einars en Jón Kaldal segir það á kostnað líf­rík­is­ins. Mynd: Arnarlax

Fisk­eldið á Vest­fjörðum er hin nýja við­spyrna, segir Einar K. Guð­finns­son, sem vinnur að fisk­eld­is­málum fyrir Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi. Laxeldi í sjó­kvíum er meng­andi iðn­aður sem ógnar líf­ríki Íslands, segir Jón Kaldal, tals­maður Íslenska nátt­úru­vernd­ar­sjóðs­ins.

Þessi tvö sjón­ar­mið voru rauði þráð­ur­inn í fram­sögum þeirra tveggja á fundi Land­verndar um fisk­eldi, umhverfi og sam­fé­lag, sem fram fór á fimmtu­dags­kvöldið. Fund­ur­inn var hluti af dag­skránni Vest­firðir – auð­lindir, nátt­úru­vernd og mann­líf sem sam­tökin stendur að.

Umræðan um fisk­eldið hefur verið að breyt­ast mikið síð­ustu mán­uð­ina og eru „flestir farnir að gera sér grein fyrir því að fisk­eldi er komið til að vera,“ sagði Einar. Hann full­yrti að fyr­ir­tæki í fisk­eldi á Íslandi vildu ganga um auð­lind­ina með ábyrgum hætti reyndu að gera sitt besta í því sam­hengi þó að ýmis­legt hafi farið úrskeiðis.

Þörf væri á fjöl­breytt­ara atvinnu­lífi á Vest­fjörðum, grein sem veru­lega mun­aði um, og fisk­eldið væri dæmi um það. „Fisk­eldið er ennþá mjög smátt í sniðum hjá okkur,“ sagði hann. Fram­leiðsla á laxi í ár yrði um 32 þús­und tonn en hún var um 25 þús­und tonn í fyrra. „Við erum að sækja í okkur veðrið og miðað við áhættu­mat Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar þá verður fisk­eldið kannski álíka stórt og í Færeyjum innan ekki mjög margra ára.“

[adspot]

Ísland hefur þá sér­stöðu, að mati Einars, að fyrir um fimmtán árum var tekin sú ákvörðun að hafa „landið að lang­mestu leyti lokað fyrir lax­eldi í sjó“. Það var að hans mati skyn­sam­legt og gaf Íslend­ingum tæki­færi til að þróa sitt eldi með ákveðnum hætti, fyrst og fremst á Vest­fjörðum og Aust­fjörðum.

Hvað umhverf­is­á­hrifin varðar sagði Einar að tölur um slysa­slepp­ingar hér við land væru lágar, hvernig sem á þær væri litið. Í áhættu­mati Hafró væri gengið „mjög langt í því að setja girð­ing­arnar varð­andi fisk­eldið þannig að við séum með var­úð­ar­nálgun í þessum efnum til að bregð­ast sér­stak­lega við áhyggjum manna um að lax­eldi sé ósam­rým­an­legt upp­bygg­ingu villtu laxa­stofn­anna“. Gögn sýndu að áhættan af fisk­eldi í sam­ræmi við matið væri mjög lítil og stað­bundin.

Samkvæmt áhættu­mat­inu sem Einar nefndi telur Hafró að firð­irnir þar sem eldi er heim­ilað geti borið rúm­lega 106 þús­und tonna eldi en fyrra mat var 71 þús­und tonn. „Guði sé lof þá erum við að sjá aukn­ingu. Hér á Vest­fjörðum er til að mynda verið að opna á [eldi] í Ísa­fjarð­ar­djúpi.“

Einar sagði lax­eldi hafa verið lítið framan af en að árið 2016 fór að muna um það. Þegar menn tali um að það sé „und­ar­legt að fisk­eldið sé ekki farið að greiða tekju­skatt“ þá skýrist það af því að mörg ár ein­kennd­ust af und­ir­bún­ingi og upp­bygg­ingu grein­ar­innar án þess að nokkrar tekjur sem um mun­aði kæmu inn. „Sem betur fer sjáum við til dæmis að Arnarlax, stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki okkar Íslend­inga, skil­aði hagn­aði upp á ein­hverjar hund­ruð millj­óna í fyrra.“

Á síð­asta ári var útflutn­ings­verð­mæti eld­is­fisks 25 millj­arðar króna á sama tíma og verð­mætin af upp­sjáv­ar­fiski voru 49 millj­arðar. „Hér er ekki um neitt smá­ræði að ræða.“

Sagði hann fisk­eldið eiga eftir að skipta máli á þeim erf­iðu tímum í efna­hags­líf­inu sem framundan væru vegna sam­dráttar í ferða­þjón­ustu og fleiri greina.

Margvíslegur skaði

„Laxeldi í sjó­kvíum er meng­andi iðn­aður sem ógnar líf­ríki Íslands,“ sagði Jón Kaldal. Slík starf­semi þurfi að fara í gegnum mat á umhverf­is­á­hrifum og með því þurfi að hafa eft­ir­lit. Um grafal­var­legt mál væri að ræða í ljósi þess að hnignun dýra­lífs jarðar hafi aldrei verið hrað­ari. Villti lax­inn væri ein af þeim dýra­teg­undum sem ætti nú undir högg að sækja vegna mann­anna verka. „Og helsta mann­gerða hættan – þar er sjó­kvía­eldi,“ sagði Jón, „vegna skað­ans af sníkju­dýrum, sjúk­dómum og erfða­blöndun frá þessum iðn­aði.“

[links]Hann sagði að það væri því ekki alls kostar rétt að í fisk­eldi fælist engin hætta. Nefndi hann sem dæmi að frá árinu 2016 hefði regn­boga­sil­ungur úr eldi gengið upp í næstum því hverja ein­ustu á á Íslandi. „Það er eðli fiska, þeir eru með sporð og þeir geta synt og þeir geta synt langt.“ Þetta ger­ist líka með eld­is­lax­inn og um það væru þegar dæmi.

Um 45 millj­ónir eld­is­laxa verða í sjó­kvíum við Ísland ef fisk­eldið verður í takt við nýtt áhættu­mat Hafró. Miðað við for­sendur um hlut­fall fiska sem sleppa muni 85 þús­und fiskar sleppa út í hafið við Ísland á hverju ein­asta ári. „Það er um það bil sama tala og gjör­vallur villti stofn­inn hér telur.“

Vitnaði hann í nið­ur­stöðu norska vís­inda­ráðs­ins um að flótta­fiskur úr eldi og laxa­lús væri mesta hættan sem steðji að villta lax­inum. Í Noregi beri 65 pró­sent villtra laxa­stofna merki erfða­blönd­unar.

Skelfileg tilhugsun

Jón minnt­ist sér­stak­lega á Ísa­fjarð­ar­djúp þar sem stefnir í mikið fisk­eldi á næstu árum. Vitnaði hann í því sam­bandi til nýrrar skýrslu þriggja óháðra sér­fræð­inga sem gerð var fyrir sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neytið og birt í lok ágúst. Í henni beina skýrslu­höf­undar því til Hafró að íhuga að nota lægri við­mið­un­ar­mörk í áhættu­mati sínu fyrir minni stofna en stærri. Ástæðan sé sú að fyr­ir­liggj­andi vís­inda­gögn bendi til þess að litlir og dreifðir stofnar séu hlut­falls­lega við­kvæm­ari fyrir inn­blöndun en þeir stærri og þétt­ari. Sagði Jón þetta einmitt eiga við um villta laxa­stofn­inn í Djúpinu og að nið­ur­staðan væri vís­bend­ing um að Hafró hefði verið of fljót á sér í áhættu­mat­inu. Í skýrsl­unni er einnig að finna svör Hafró við gagn­rýni skýrslu­höf­unda og seg­ist stofn­unin ætla að skoða ábend­ing­arnar „mjög alvar­lega,“ sagði Jón.

Að setja sjó­kvía­eldi niður í Ísa­fjarð­ar­djúpi finnst Jóni skelfi­leg til­hugsun. Í næsta nágrenni Djúpsins séu gjöf­ul­ustu fiski­mið lands­ins og mik­il­vægar upp­eld­is­stöðvar fyrir margar teg­undir. „Nú er verið að fara að gera til­raun í líf­rík­inu án þess að menn viti afleið­ing­arnar.“

Einar hafn­aði þessu og sagði ekk­ert benda til þess að lax­eldi hefði nei­kvæð áhrif á afkomu ann­arra fiski­stofna heldur þvert á móti. Sjómenn fyrir vestan hefðu sagt honum frá því að fisk­ur­inn væri að leita í fóð­ur­leifar þær sem sann­ar­lega féllu til frá eld­inu. „Það er ekk­ert sem bendir til þess að fisk­eldið hafi nei­kvæð áhrif á botn­fisk­stofn­ana, það væri þá auð­vitað búið að koma fram í þeim löndum þar sem fisk­eldi hefur verið stundað um ára­bil.“

Hvað meng­un­ina frá eld­inu varðar benti Jón á að sjó­kví væri ekk­ert annað en neta­poki sem hangi á grind. Allt fari í gegnum net og það geri fiskur líka ef netið rofnar. Ef 106 þús­und tonna lax­eldi yrði leyft hér við land þá myndi meng­unin jafn­ast á við skólp frá 1,7 millj­ónum manna. Byggði Jón þessa útreikn­inga á mati norsku umhverf­is­stofn­un­ar­innar sem segi að frá hverju tonni af lax­eldi renni ígildi skólp­meng­unar frá sextán mann­eskjum.

Neikvæðu áhrifin eru þó að mati Jóns ekki ein­göngu bundin við mengun og erfða­blöndun. Sníkju­dýr á fiskum í eldi séu skæð og lyfin og eitrið sem notað er gegn þeim sé sömu­leiðis slæmt fyrir líf­ríkið. „Þannig að við erum að tala um að það sem fer úr kví­unum eru fóð­ur­leifar, saur frá fiskum, skor­dýra­eitur og lyfja­fóður. Þetta er ekki umhverf­is­væn fram­leiðsla.“

[adspot]

Jón ræddi einnig um dýrið sjálft sem verið er að rækta og benti á að bein­línis væri gert ráð fyrir því að 20 pró­sent lax­anna lifðu ekki af vist­ina í kví­unum. Ár eftir ár hafi norsk eld­is­fyr­ir­tæki sagst ætla að reyna að draga úr þessum dauða en ekk­ert hafi áunn­ist. Einnig nefndi hann laxalús­ina. Hún væri mjög skæð þegar hún fyndi marga hýsla saman eins og í eld­iskvíum. Þá yrði nán­ast kjarn­orku­spreng­ing; lúsin fjölg­aði sér gríð­ar­lega hratt og æti sig svo inn í hold og jafn­vel heila dýr­anna.

Líta ætti frekar til upp­bygg­ingar land­eldis. „Við hjá Íslenska nátt­úru­vernd­ar­sjóðnum segjum að við getum byggt upp umhverf­is­vænt og sjálf­bært eldi á Íslandi sem ógnar hvorki umhverfi né líf­ríki lands­ins. Því við erum ekki á móti fisk­eldi heldur þeirri gam­al­dags aðferð sem sjó­kvía­eldi er og er skað­legt fyrir nátt­úr­una og umhverfið.“

Hann og Einar voru þó sam­mála um að land­eldi gæti ekki orðið gríð­ar­lega umfangs­mikið hér á landi. Einar sagði að í raun væri þró­unin orðin sú að land­eldi væri að aukast, þ.e. seiðin eru alin upp á landi þar til þau verða það stór að minni hætta og skaði verði af því að þau sleppi úr kví­unum. Þannig sé orðin til sam­bland af sjó­kvía­eldi og land­eldi.

Enginn arður enn

Spurður hvert arður af starf­semi fisk­eld­is­fyr­ir­tækja á Íslandi muni fara sagði Einar að hann muni „auð­vitað lenda á Íslandi.“ Þeir kostn­að­ar­liðir sem til féllu í rekstr­inum væru að stærstum hluta inn­lendir. „Ekkert af þessum [erlendu] fisk­eld­is­fyr­ir­tækjum sem hafa verið að fjár­festa á Íslandi eru farin að fá arð. Hingað til hafa þeir verið að leggja fram fjár­muni og arð­greiðsl­urnar koma ekki fyrr en menn eru betur komnir fyrir vind.“

Mik­il­væg­ast væri þó að íslenskt sam­fé­lag nyti góðs af fisk­eld­inu á margan hátt, m.a. vegna útflutn­ings­verð­mæta, upp­bygg­ing­ar­innar og starf­anna sem sköp­uð­ust. Að sögn Jóns er því ósvarað hversu mikið af gjald­eyri fari úr landi vegna kaupa á ráð­gjöf, bún­aði og fóðri frá hinum norsku eig­endum á móti útflutn­ings­verð­mæt­unum sem Einari væri tíð­rætt um.

„Sjó­kvía­eldi, þessi aðferð við að fram­leiða mat­vöru, hún til­heyrir liðnum tíma,“ sagði Jón. „Ég held að það verði litið á verk­smiðju­bú­skap tutt­ug­ustu ald­ar­innar sem einn versta glæp mann­kyns innan örfárra kyn­slóða. Og sjó­kvía­eldi er klár­lega hluti af þeim skelfi­lega iðn­aði.“

Hér að neðan er hægt að horfa á fund Land­verndar í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár