Eldið í Arnarfirði myndi hafa nokkuð neikvæð áhrif á villta laxa

Sam­an­lagt mun núver­andi og fyr­ir­hugað lax­eldi í Arn­ar­firði verða 20 þús­und tonn. Þar með yrði burð­ar­þoli fjarð­ar­ins að mati Hafró náð. Eldið myndi hafa nokkuð nei­kvæð áhrif á villta laxa með til­liti til erfða­blönd­unar og laxalúsar.

Í matsskýrslu kemur fram að Arctic Sea Farm áformi að hefja laxeldi á þremur svæðum í Arnarfirði: í Trostansfirði, við Hvestudal og við Lækjarbót.
Í mats­skýrslu kemur fram að Arctic Sea Farm áformi að hefja lax­eldi á þremur svæðum í Arn­ar­firði: í Trostans­firði, við Hvestu­dal og við Lækj­ar­bót. Mynd: Af Wikipedia

Skipu­lags­stofnun telur mats­skýrslu Arctic Sea Farm um áformað 4.000 tonna lax­eldi í Arn­ar­firði upp­fylla skil­yrði laga um mat á umhverf­is­á­hrifum. Í áliti sínu telur stofn­unin helstu nei­kvæðu áhrif fram­leiðsl­unnar fel­ast í auknum áhrifum á botn­dýra­líf, mögu­legum áhrifum á villta lax­fiska vegna auk­ins álags laxalúsar og mögu­legum áhrifum á villta laxa­stofna vegna erfða­blönd­unar. Auk þess telur Skipu­lags­stofnun að fram­leiðslan komi til með að hafa nei­kvæð sam­legð­ar­á­hrif með öðru eldi á Vest­fjörðum, bæði núver­andi og fyr­ir­hug­uðu, á villta laxa með til­liti til erfða­blönd­unar og á villta lax­fiska vegna laxalúsar.

Í mats­skýrslu kemur fram að Arctic Sea Farm áformi að hefja lax­eldi á þremur svæðum í Arn­ar­firði; í Trostans­firði, við Hvestu­dal og við Lækj­ar­bót. Stefnt sé að því að fram­leiða að með­al­tali 4.000 tonn af laxi árlega í kyn­slóða­skiptu eldi. Til eld­is­ins verði notuð seiði af kyn­bættum laxa­stofni af norskum upp­runa.

[adspot]

Auk fyr­ir­hug­aðs lax­eldis Arctic Sea farm í Arn­ar­firði hafa fyr­ir­tækin Arnarlax og Fjarða­lax heim­ild til fram­leiðslu á 11.500 tonnum af laxi í firð­inum. Haf­rann­sókna­stofnun hefur metið burð­ar­þol Arn­ar­fjarðar 20.000 tonn. Í umsögn Umhverf­is­stofn­unar um mats­skýrsl­una kemur fram að Arnarlax áformi um 4.500 tonna aukn­ingu og sam­an­lagt séu því nú uppi áform um 20.000 tonna eldi í firð­inum.

[links]Í mats­skýrslu kemur fram að áætlað fóð­ur­magn fyrir eina kyn­slóð af laxi á sér­hverju eld­is­svæði sé um 4.840 tonn (um 1.150 kíló af fóðri þarf til að fram­leiða 1.000 kíló af laxi). Vegna lax­eld­is­ins muni um 460 tonn af föstum úrgangi (kolefni, köfn­un­ar­efni og fos­fór) falla til botns undir og í nágrenni eld­iskvía yfir þriggja ára eld­is­lotu og um 130 tonn af upp­leystum nær­ing­ar­efnum.

Áhrif á eðlisþætti sjávar og burðarþol

Arctic Sea Farm telur að áhrif eld­is­ins á eðl­is­eig­in­leika sjávar séu aft­ur­kræf og tíma­bundin. Með mark­vissri vöktun á umhverf­is­á­hrifum verði mögu­legt að grípa til mót­væg­is­að­gerða ger­ist þess þörf.

Skipu­lags­stofnun segir í áliti sínu að hafa beri í huga að í burð­ar­þols­mati Hafró komi fram að burð­ar­þols­mörkin séu ekki end­an­leg og að búast megi við end­ur­mati ef þörf krefur. Því telur Skipu­lags­stofnun að við leyf­is­veit­ingar þurfi að setja skil­yrði um vöktun á áhrifum eldis á botn­lag sjávar.


Lífrænt álag, botndýralíf og kalkþörungar

Í mats­skýrslu Arctic Sea Farm Farm kemur fram að saur og fóð­ur­leifar undir kví­unum og næst þeim muni hafa tíma­bundin nei­kvæð áhrif á vist­kerfi hafs­botns. Þrátt fyrir mark­vissa stýr­ingu á nýt­ingu eld­is­svæða og hvíld þeirra að lok­inni slátrun megi búast við að áhrifin verði tals­vert nei­kvæð en stað­bundin og aft­ur­kræf.

Skipu­lags­stofnun telur að áhrif vegna upp­söfn­unar líf­ræns úrgangs á sjáv­ar­botn verði tals­vert nei­kvæð á tak­mörk­uðu svæði undir og nærri eld­is­stað. Fjær verði áhrifin nokkuð nei­kvæð til óveru­leg. Áhrifin verði þannig stað­bundin og ráð­ist af umhverf­is­að­stæðum á hverjum stað.

Stofn­unin telur mik­il­vægt að fyrir liggi rann­sóknir á botn­dýra­lífi á áætl­uðum eld­is­svæðum áður en gefið verði út starfs­leyfi og að í því verði kveðið á um að eldi hefj­ist ekki á ný að lok­inni hvíld fyrr en hafs­botn hafi náð ásætt­an­legu ástandi.

Erfðablöndun

Arctic Sea Farm telur að „virkasta átakið“ til að fyr­ir­byggja erfða­blöndun sé að hindra slepp­ingar smá­seiða og auka notkun ljósa til þess að „draga úr hættu á að eld­is­fiskur verði kyn­þroska“. Í heild­ina metur fyr­ir­tækið áhrif erfða­blönd­unar óveru­leg og aft­ur­kræf.

Með hlið­sjón af áhættu­mati Haf­rann­sókna­stofn­unar telur Skipu­lags­stofnun að áhrif fram­kvæmdar á laxa­stofna í þeim ám sem matið nær til verði óveru­leg en horfa verði einnig til áhrifa í öðrum ám. „Gera verður ráð fyrir að stroku­laxar geti leitað upp í ár í Arn­ar­firði og jafn­vel í ár í öðrum fjörðum sem áhættu­mat tekur ekki til­lit til.“

Í umsögn Haf­rann­sókna­stofn­unar er bent á að í Noregi hafi grein­ing á áhrifa­þáttum í umhverfi villtra laxa sýnt að fisk­eldi hafi áhrif og geti leitt til breyt­inga og jafn­vel útrým­ingar. Far­leiðir og dreif­ing laxa sem sleppi úr sjó­kvíum hér við land sé óþekkt. Miðað við stöðu þekk­ingar á inn­blöndun sé ekki hægt að fall­ast á að áhrifin verði óveru­leg og aft­ur­kræf.

Nið­ur­stöður rann­sóknar Haf­rann­sókna­stofn­unar á erfða­blöndun eld­is­laxa við íslenska laxa­stofna benda til þess að laxa­stofnar á Vest­fjörðum myndi sér­stakan erfða­hóp og að líta megi svo á að þeir hafi vernd­ar­gildi út frá sjón­ar­miðum um varð­veislu líf­fræði­legs fjöl­breyti­leika. Einnig benda nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar til að erfða­efni eld­is­lax hafi bland­ast villtum laxi á Vest­fjörðum.

Telur Skipu­lags­stofnun að fyr­ir­hugað eldi muni hafa nokkuð nei­kvæð áhrif á villta laxa­stofna á Vest­fjörðum. Sé horft til allra laxa­stofna á Vest­fjörðum telur Skipu­lags­stofnun að sam­legð­ar­á­hrif vegna ann­arra eld­is­fyr­ir­tækja verði tals­vert nei­kvæð.

Áhrif á fisksjúkdóma og laxalús

Komi til þess að villtur fiskur sýk­ist af völdum smits frá eld­is­fiski telur Arctic Sea Farm slík áhrif aft­ur­kræf og óveru­leg.

Í ljósi þess að Mat­væla­stofnun gerir ekki athuga­semd við umfjöllun fram­kvæmda­að­ila um áhrif sjúk­dóma telur Skipu­lags­stofnun að litlar líkur séu á að fyr­ir­hugað eldi komi til með að smita villta laxa. Áhrif fram­kvæmdar á villta fiska með til­liti til sjúk­dóma eru því metin óveru­leg.

En borið hefur á lúsa­smiti í eldi á Vest­fjörðum und­an­farin ár og í Arn­ar­firði var gripið til lyfja­með­höndl­unar vegna laxalúsar og fiskilúsar árin 2017, 2018 og 2019. Með hlið­sjón af reynslu síð­ustu ára telur Skipu­lags­stofnun lík­legt að laxa­lús og fiski­lús eigi eftir að koma reglu­lega upp í eldi Arctic Sea Farm í Arn­ar­firði. Líklegt sé að fyr­ir­hugað eldi komi til með að auka laxalúsa­á­lag á þá laxa­stofna sem finna megi í firð­inum. Telur Skipu­lags­stofnun að áhrif af völdum laxalúsar og fiskilúsar geti orðið nokkuð nei­kvæð á villta lax­fiska­stofna.

Þá telur stofn­unin að með auknu fisk­eldi í Arn­ar­firði og á Vest­fjörðum fjölgi smit­leiðum ásamt því að líkur auk­ist á því að laxa­lús magn­ist upp í og við eld­iskvíar. Einnig er það mat stofn­un­ar­innar að fyr­ir­hugað eldi komi til með að hafa nei­kvæð sam­legð­ar­á­hrif með öðru núver­andi og áform­uðu eldi á Vest­fjörðum.

Í áliti sínu bendir Skipu­lags­stofnun á að í skýrslu Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar, Lyf gegn laxa­lús, komi fram að notkun lyfja gegn laxa­lús kunni að fela í sér slæmar afleið­ingar fyrir annað líf­ríki.

Áhrif á ásýnd og verndarsvæði

Arctic Sea Farm telur að áhrif kvía­þyrp­ing­ar­innar í Trostans­firði á lands­lagið yrði nokkur. Þyrp­ingin verði sýni­leg í öllum firð­inum. Eld­is­svæði við Hvestunúp yrði sýni­legt þeim sem keyra um Ket­ildala­veg út í Selárdal og einnig frá ytri hluta Vaðals sem er vin­sælt úti­vist­ar­svæði. Heild­ar­á­hrif fisk­eld­is­ins á ásýnd og vernd­ar­svæði yrðu að mati fyr­ir­tæk­is­ins þó óveru­leg og aft­ur­kræf.

Skipu­lags­stofnun segir að ásýnd­ar­á­hrif á hin umfangs­miklu vernd­ar­svæði í syðri hluta Arn­ar­fjarðar vegna sjó­kví­anna verði áber­andi nei­kvæð en aft­ur­kræf.

„Ljóst er að auk fyr­ir­hug­aðrar fram­kvæmdar Arctic Sea Farm er eldi í sjó­kvíum starf­rækt eða fyr­ir­hugað í flestum fjörðum Vest­fjarða­kjálkans,“ segir áliti stofn­un­ar­innar. „Því telur Skipu­lags­stofnun lík­legt að sam­legð fram­kvæmd­anna muni leiða til nokkuð nei­kvæðra sjón­rænna áhrifa á upp­lifun gesta sem leið eiga um Vest­firði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fiskeldi

FréttirFiskeldi

Mat­væla­ráð­herra segir fisk­eldi vera „vara­sama atvinnu­starf­semi“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði sjó­kvía­eldi vera „mjög vara­sama atvinnu­starf­semi,“ sem þurfi að koma böndum á með lögum. Óvissa ríkir um sekt­ar­á­kvæði frum­varps­ins sem kveður áum háar fjár­sektir á fyr­ir­tæki sem ger­ist upp­vís um vinnu­brögð sem hafa í för með sér slæmar afleið­ingar fyrir umhverfið og líf­ríkið hér á landi.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár