Spillingarvísitala samtakanna Transparency International fyrir árið 2023 var gefin út í vikunni og var niðurstaðan sú að Ísland féll um nokkur sæti og mældist með lægra skor en í fyrra, eða 72 stig af 100 mögulegum. Að fá 100 stig á þessari vísitölu er best, því það þýðir að í viðkomandi ríki mælist ásýnd spillingar nær engin. Stigin 72 skila Íslandi í 19. sæti á lista 180 ríkja sem vísitalan nær utan um.
Á liðnum árum hefur stundum verið tekist á um gildi þessarar vísitölu í opinberri umræðu hérlendis. Þeir sem vilja gera lítið úr gildi þessarar mælingar hafa bent á að einn hluti einkunnar Íslands, sem alls er samsett úr sjö mismunandi gagnapunktum, stafi af mati tveggja íslenskra háskólamanna sem tekið hafa saman skýrslur um stjórnarfar á Íslandi fyrir þýska hugveitu, Bertelsmann-stofnunina. Háskólamennirnir tveir eru Þorvaldur Gylfason, hagfræðiprófessor við HÍ, og Grétar Þór Eyþórsson, stjórnmálafræðiprófessor við HA.
…Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir (2)