Óttast „týnda kynslóð“ ungra Breta

Ný skýrsla bendir til að kjör og horfur Breta undir 34 ára aldri séu verri en hjá kynslóðunum á undan.

Kynslóð Breta undir 34 ára aldri standa í dag frammi fyrir verri efnahags­horfum en fjöldi annarra kynslóða á undan. Atvinnu­markaður og tekju­möguleikar hafa versnað mjög í landinu á síðastliðnum fimm árum. Það verður erfiðara fyrir þessa ungu kynslóð Breta að fóta sig heldur en aðrar á undan.

Þetta er niður­staða skýrslu nefndar um jöfnuð og mann­réttindi í Bretlandi og frétta­vefurinn Guardian greinir frá. Skýrslan ber yfir­skriftina „Er Bretland sann­gjarnara?“. Bent er á í frétt Guardian að atvinnu­horfur hafi farið versnandi frá 2010, eða frá því að samsteypu­stjórn leidd af Íhaldsflokkinum var mynduð.

Er það niður­staða nefndarinnar, sem er veitt vald af breska þinginu til að bregðast við mismunun hvers konar, að þótt aðstæður í Bretlandi séu í dag sann­gjarnari fyrir marga, þá hafi framför lífsgæða staðnað eða farið aftur í tilviki ákveðinna samfélags­hópa. Bretar undi 34 ára aldri hafi fengið á sig þyngsta höggið í kjölfar kreppunnar og allt til ársins 2013. Þessi aldurs­hópur tók á sig mestu launa­lækkunina, var líklegastur til að missa vinnuna, bjó við verri húsakost og upplifði aukna fátækt.

Atvinnu­leysi í Bretlandi mælist 14,8 prósent hjá fólki á aldrinum 16 til 24 ára. Það er um prósentu­stigi hærra en í febrúar 2008, fyrir upphaf kreppunnar.

Umfjöllun The Guardian má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár