Íslamska ríkið sagt dreifa heimilisfangi mannsins sem drap Osama bin Laden

Breskur stuðnings­maður hryðjuverka­samtakanna Íslamska ríkisins er sagður bera ábyrgð á því að upplýsingar um Rob O'Neill, manninn sem segist hafa skotið Osama bin Laden til bana, eru nú í dreifingu á internetinu. Mirror greindi frá þessu.

Mirror segist hafa fylgst með hryðju­verkamönnum á samfélags­miðlum og séð marga deila skjali sem inni­heldur upplýsingar um það hvernig hægt sé að finna O'Neill, meðal annars með heimilis­fangi hans. Stjórn­endur samfélags­miðla hafa reynt að koma í veg fyrir dreifinguna, og það hefur einnig verið reynt að loka síðunni sem hýsir skjalið með upplýsingunum. Í upphaf­legu deilingunni sagðist þessi breski öfgamaður skilja þessar upplýsingar eftir fyrir bræður hans og Al-Kaída í Banda­ríkjunum. O'Neill væri helsta skotmark þeirra og „bræður hans“ ættu að finna og drepa hann.

O'Neill hefur vakið mikla athygli og sætt gagnrýni í kjölfar þess að hann kom fram opinber­lega og sagðist vera hermaðurinn sem bar ábyrgð á dauða bin Laden, en hann var skotinn til bana í árás í Abbottabad í Pakistan árið 2011. O'Neill kom fram í myndinni „The Man Who Killed Osama bin Laden“. Ekki eru allir sammála því að það hafi verið hann sem skaut bin Laden til bana, meðal annars hafa aðrir hermenn sagt að frásögn hans eigi ekki við rök að styðjast.

Mirror segist hafa reynt að hafa samband við O'Neill til að vara hann við, en án árangurs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár