Evrópusambandið telur að þrjár milljónir flóttamanna komi til Evrópu árið 2017

Evrópu­sambandið telur að þrjár milljónir flótta­manna muni freista þess að hefja nýtt líf í Evrópu árið 2017, og muni einkum koma frá stríðs­hrjáðum svæði í Sýrlandi, Írak, Afganistan og nágranna­ríkjum. Talið er að hagvöxtur muni aukast um 0,2 til 0,3 prósent vegna þessa en fjöldin nemur því að íbúum í Evrópu­sambands­ríkjum, sem eru ríflega 500 milljónir, muni fjölga um 0,6 prósent.

Þetta jafn­gildir því að um 8.220 flótta­menn muni leita til Evrópu­landa á hverjum degi ársins 2017 með von um betra líf.

Breska ríkis­útvarpið BBC segir í umfjöllun sinni um málið, að engar vísbendingar hafa komið fram um að straumur flótta­manna til Evrópu, ekki síst í gegnum löndin sem liggja að Miðjarðar­hafinu og einnig ríki Austur-Evrópu, sé að minnka. Þvert á móti sé hann að aukast og miklar áhyggjur séu uppi víða í álfunni, vegna stöðunnar sem getur komið upp í vetur, þegar kalt verður úti.

Búist er við því að um fimm þúsund flótta­manna muni á hverjum degi koma til Grikk­lands frá Tyrklandi, á næstu mánuðum, einkum fólk sem er á flótta vegna stríðsins í Sýrlandi. Meira en ellefu milljónir manna, af um 22 milljóna heildar­íbúafjölda, sé miðað við stöðu mála í lok árs 2014, eru nú á flótta. Ýmist utan eða innan Sýrlands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár