Knattspyrnugoðsögnin Pele liggur EKKI á gjörgæslu

Knattspyrnu­maðurinn fyrr­verandi Edson Arantes do Nascimento, betur þekktur sem Pelé, var í dag færður á gjörgæslu­deild sjúkra­húss í Sao Paulo, en hann var lagður inn á sjúkra­húsið fyrir þremur dögum vegna þvagfæra­sýkingar. Heilsu hans hefur hrakað mikið síðan, og því var hann færður til sérstakrar aðhlynningar á gjörgæslu. Frétta­stofa AFP greinir frá málinu.

Pelé gekkst undir aðgerð fyrir tæpum tveimur vikum, þegar nýrna­steinar voru fjar­lægðir úr honum, en hann er 74 ára gamall. Hann var útskrifaður tveimur dögum síðar. Að sögn læknis, á The Albert Einstein heilbrigðis­stofnuninni í Brasilíu, er ástand knattspyrnu­goðsagnarinnar stöðugt. Honum eru nú gefin sýklalyf í æð. „Til að veita honum bestu mögulegu meðhöndlun, var tekin ákvörðun um að færa hann yfir á gjörgæslu­deild“ er haft eftir lækninum. Engar upplýsingar fást uppgefnar um hvenær Pele verður mögulega útskrifaður af sjúkra­húsinu.

Pele er af mörgum talinn einn besti knattspyrnu­maður heims fyrr og síðar, fyrir afrek sín með brasilíska lands­liðinu, sem og knattspyrnu­feril sinn þar sem hann skoraði hátt í þrettán hundruð mörk í tæplega fjórtán hundruð leikjum. Hann skoraði 77 mörk í 91 leik fyrir brasilíska lands­liðið og varð heims­meistari með liðinu í fyrsta skiptið árið 1958, þá sautján ára gamall. Hann skoraði tvívegis í úrslita­leiknum gegn gest­gjöfunum Svíum.

ATH! UPPFÆRT kl. 19:26


Eins og kemur fram hér að ofan byggði Kjarninn frétt sína á frétt AFP. Fjöl­miðlar segja nú að tals­maður Pelé að ástand knatt­spyrnu­hetj­unnar sé ekki eins slæmt og ensku­mæl­andi fjöl­miðar hafi gefið til kynna. Svo virð­ist sem að þýð­ing á heiti sjúkra­deild­ar­innar sem Pelé dvelst nú á, hafi eitt­hvað mis­farist í fjöl­miðlum. Það sé alls ekki gjör­gæslu­deild, heldur sé hann undir sér­stakri gæslu á sam­nefndri deild. Þá er haft eftir tals­manni Pelé að hann hafi fyrst og fremst verið fluttur á sjúkra­hús til að forð­ast ónæði, þar sem afar margir hafi viljað heim­sækja knatt­spyrnu­goð­sögn­ina.

Þá hefur frétta­stofa Reuters greint frá því að talsmaður sjúkra­hússins hafi borið til baka fréttir þess eðlis að Pelé sé á gjörgæslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár