Bretar ætla að gefa túrtappaskatttekjur í góðgerðarmál

George Osborne, fjármála­ráðherra Breta, tilkynnti í dag að Bretland muni gefa allar skatt­tekjur vegna skatts sem lagður er á túrtappa og dömubindi til góðgerðar­mála í þágu kvenna. Þetta kom fram í ræðu sem hann flutti í dag um framgang fjárhags­áætlunar ríkis­stjórnar Íhalds­flokksins. Um er að ræða 15 milljónir punda á ári, eða um þrjá milljarða króna. Frá þessu er greint á vef Business Insider.

Samkvæmt Evrópu­reglum verður að leggja að minnsta kosti fimm prósent virðis­aukaskatt á ýmsar hreinlætis­vörur, meðal annars túrtappa og dömubindi, þar sem þær teljast vera lúxus-vörur. Alls hafa um þrjú hundruð þúsund manns í Bretlandi skrifað undir áskorun á stjórn­völd að afnema slíkan skatt.

Ríkis­stjórn Verkamanna­flokksins lækkaði skattinn úr 17,5 prósent í fimm prósent árið 2000 en gat ekki lækkað hann meira vegna reglna Evrópu­sambandsins. Osborne sagði að ríkis­stjórnin ætlaði áfram sem áður að þrýsta á Evrópu­sambandið að afleggja þann fimm prósent skatt sem enn er á vörunum en þangað til að það bæri árangur myndi ríkið gefa allar tekjur sem skatturinn skilaði til góðgerðar­mála í þágu kvenna.

„Hvers vegna er verið að skattleggja á mér legið?“

Dömubindi og túrtappar voru til umræðu á Alþingi Íslendinga í síðustu viku þegar Heiða Kristín Helga­dóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, spurði Bjarna Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, hvort unnið væri að því að lækka virðis­aukaskatt á þær vörur. Heiða Kristín spurði: „Hvers vegna er verið að skatt­leggja á mér legið?“.

Í ræðu sinni vakti Heiða Kristín athygli á því að virðis­aukaskattur á smokka, bleiur og bleiu­fóður hafi verið lækkaður í aðgerðum fjármála- og efnahags­ráðherra þar sem vörugjöld voru afnumin og virðis­aukaskattur á ýmsar vörur lækkaður. Virðis­aukaskattur á dömubindi og túrtapa hafi hins vegar verið látinn vera áfram 24 prósent.

Bjarni sagði í svari sínu að breytingarnar á virðis­aukaskatts­kerfinu hafi verið ætlaðar að létta barna­fjölskyldum innkaup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár