„Fór um mig hrollur þegar ég frétti að þeir væru í nágrenninu“

Gríðar­lega fjölmennt lið lögreglu- og hermanna hefur nú umkringt prentsmiðju í smábænum Dammartin-en-Goele, þar sem Kouachi bræðurnir, sem grunaðir eru um fjölda­morðin á og við skrif­stofu skop­mynda­blaðsins Charlie Hebdo, hafast við og hafa tekið einn einstakling í gíslingu. Bærinn, þar sem umsátrið ríkir, er í um nítján kílómetra fjarlægð frá alþjóða­flug­vellinum Charles De Gaulle, sem liggur 23 kílómetra norð­austur af París.

Fréttir herma nú að farsíma­samband náist ekki lengur í bænum Dammartin-en-Goele. Fólki hefur verið sagt að halda kyrru fyrir þar sem það er en að slökkva ljós og halda sig frá gluggum.

Á blaðamanna­fundi í franska innan­ríkis­ráðuneytinu í morgun viðurkenndi Francois Hollande Frakk­lands­forseti að yfirvöld hefðu vitað að hætta væri á hryðjuverka­árásum. Dæmi væru um áform um hryðju­verk sem hefði verið komið í veg fyrir.

Einn þeirra sem lifði af árásina á Charlie Hebdo talaði við fjölmiðla í París í morgun. Hann segist hafa falið sig undir skrif­borði og jafnframt segist hann hafa heyrt hryðju­verka­mennina ræða saman eftir að hafa myrt tíu manns. Þeir hafi sagst telja að þeir hafi “náð öllum” og að talað um að þeir myrtu ekki konur.

Greint hefur verið frá því að lögregla sé nú að ræða við hryðju­verka­mennina tvo um að sleppa gíslinum sem þeir eru með. Talið er að gíslinn í prentsmiðjunni sé kona og því eru nú taldar vonir á því að hægt verði að semja um að henni verði sleppt. Yves Albarello, þingmaður UMP, hefur þó sagt í frönskum fjöl­miðlum að mennirnir tveir hafi lýst því yfir að þeir vilji deyja sem píslar­vottar.

Nýjustu upplýsingar frá Charles de Gaulle flugvelli eru þær að allar flug­brautir séu opnar. Hins vegar hefur flugtökum og lendingum verið hagað þannig að ekki sé flogið yfir umsáturs­svæðið.

Hélt dætrum sínum heima til öryggis


Bræðr­anna hefur verið ákaft leitað eftir að hryðju­verkin í París. Sigrún Halla Árna­dóttir Tarafa, sem starfar sem flug­freyja hjá Air France, býr í smá­bænum Crépy-en-Valois. Talið er að Kouachi bræð­urnir hafi haldið til í skógi við bæinn, sem er í um þrjá­tíu kíló­metra fjar­lægð frá Dammartin-en-Goele.

Sigrún Halla Árna­dóttir Tarafa.

Sigrún Halla Árnadóttir Tarafa.
Sigrún Halla Árna­dóttir Tarafa.

„Ég fór í vinnuna klukkan fimm í gærmorgun, og hafði þá ekki hugmynd um að bræðurnir væru í nágrenninu. Dóttir mín lét mig síðar vita að hún hefði séð lögreglu­menn í herklæðum á leiðinni í skólann í skóla­bílnum. Þá fór um mig hrollur,“ segir Sigrún Halla í samtali við Kjarnann.

„Þegar ég heyrði svo að þeir héldu sig í skóginum hér í kring, ákvað ég að halda dætrum mínum heima í dag til öryggis. Ég finn ekki fyrir hræðslu hjá þeim samt, en eldri dóttir mín var alls ekki sátt við að komast ekki í skólann í morgun. Hún sagði að girðingin í kringum skólann sé það sterk og það sé ekkert að óttast. Svo læsi kennarinn líka alltaf útidyra­hurðinni!“

Samkvæmt nýjustu fréttum verður börnum í skólum í nágrenni Dammartin haldið innandyra í dag, og hefur foreldrum þeirra verið gert viðvart. Sigrún Halla segir Frakka í áfalli eftir hryðju­verkin í París, og þau hafi haft víðtæk áhrif og þá líka á börnin. „Þau fylgjast með þessu og tala um þetta í skólunum. Í gær þögðu þau í eina mínútu eins og alls staðar í Frakk­landi, en hér ríkir mikil sorg og fólk er bara ekki alveg að ná þessu. Í vinnunni límdum við „Je suis CHARLIE“ á einn skápinn í flug­vélinni þar sem farþegarnir tóku vel eftir, og sumir þeirra lýstu yfir hrifningu með uppátækið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár