Ebólu-próf sem greinir sjúkdóminn á 15 mínútum í prófun

Vísinda­menn í Senegal hafa þróað próf sem getur greint á fimmtán mínútum hvort sjúklingur sé sýktur af ebólu-veirunni. Frétta­miðillinn Quartz greinir frá málinu.

Prófið er meðfærilegt, knúið með sólar­rafhlöðum, og mun ryðja úr vegi öðrum sein­virkari prófunum með því að greina sjúk­dóminn á mun skemmri tíma. Prófið er sex sinnum fljótara að greina ebólu-smit en önnur próf, sem notast hefur verið við til þessa.

Þróun prófsins er í umsjón Pasteur stofnunarinnar í Dakar, og er fjár­magnað að hluta af breskum stjórn­völdum.

Áreiðanlegt fimmtán mínútna próf sem getur staðfest ebólusmit myndi vera mikilvægt vopn í barátt­unni við útbreiðslu sjúk­dómsins, þar sem sjúklingar geta verið greindir, einangraðir og meðhöndlaðir á sem skemmstum tíma. Fljót­virkt próf sem þetta, myndi auka lífslíkur smitaðra og hindra frekari útbreiðslu sjúk­dómsins.

Vísinda­menn hjá Pasteur stofnuninni munu á næstu vikum prófa greiningar­prófið hjá Ebólu-miðstöðinni í Gíneu. Til þessa hefur sjúk­dómurinn dregið 5.50o manns til dauða, þar af ríflega tólf hundruð bara í Gíneu.

Prófið hefur það fram yfir núver­andi próf sem not­ast er við, að hægt er að nota það í stofu­hita auk þess að vera með­færi­legt og smátt í smíðum. Þá gera sól­ar­raf­hlöð­urnar það að verkum að hægt er að nota prófið á afskekktum svæðum, þar sem raf­magn er af mjög skornum skammti eða bara alls ekki til staðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár