Ógnarástand í Belgíu - hermenn komnir á göturnar í Brussel

Um 300 þung­vopnaðir hermenn eru nú komnir á göturnar í Brussel og víðar í Belgíu, vegna gruns um að íslamskir hryðju­verkamenn ætli að láta til skarar skríða í landinu. Breska ríkis­útvarpið BBC greinir frá þessu, og vitnar til tilkynningar frá Charles Michel, forsætis­ráðherra Belgíu, þess efnis að hermenn muni gæta öryggis á meðan ógn er talin vera fyrir hendi.

Lögreglu­sveitir víða í Evrópu standa í umfangsmestu samræmdu lögreglu­aðgerðum sem gripið hefur verið til í álfunni í langan tíma, með það að markmiði að koma í veg fyrir frekari árásir íslamskra hryðju­verkamanna. Sautján létu lífið í árásum á ritstjórnar­skrifstofur Charlie Hebdo í París og Kosher Grocery markaðinn, auk árásar­mannanna þriggja.

Í Belgíu hafa þrettán verið hand­teknir og tveir skotnir til bana, í Frakk­landi hafa tólf verið hand­teknir og í Þýska­landi eru í gangi aðgerðir sem miða að því að koma í veg fyrir árásir. Tveir hafa verið hand­teknir og húsleitir framkvæmdar á ellefu stöðum.

Samkvæmt fréttum breska ríkis­útvarpsins BBC hafa fimm af þeim þrettán sem handtekin voru í Belgíu gær, þegar verið ákærð fyrir að aðstoða mennina tvo sem voru skotnir eftir þeir hófu skothríð á lögreglu við undir­búning árása á lögreglu­menn og lögreglu­stöðvar í Belgíu.

Mikill viðbúnaður er í álfunni og eru vopnaðir lögreglu­menn víða, einkum á opinberum stöðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár