Vandamálin hrannast upp í Evrópu - kreppa handan við hornið?

Hægagangur í evrópska hagkerfinu er farinn að hafa mikil neikvæð áhrif á horfur í alþjóða­hagkerfinu, samkvæmt umfjöllunum sem birst hafa í fagtímaritum um efnahagsmál og viðskipti að undan­förnu. Tölur sem sýndu 5,8 prósent minnkun útflutnings­tekna þýska hagkerfisins í ágúst­mánuði, miðað við árið á undan, þykja til marks um að þörf sé á miklum örvunar­aðgerðum til viðbótar við þær sem þegar hefur verið gripið til. Kreppa er jafnvel sögð handan við hornið, það er neikvæður hagvöxtur, ef ekki verður brugðist við.

Seðla­banki Evrópu hefur tilkynnt að bankinn muni hugsanlega liðka fyrir aðgengi fyrir­tækja í Evrópu að fjármagni, með örvunar­aðgerðum, ef þörf verður á. Þessum fréttum var vel tekið á markaði í gær, bæði í Evrópu og Banda­ríkjunum. Vísitala Nasdaq hækkaði um 2,4 prósent, sem er mesta dags­hækkun frá því í janúar 2013, eftir þessi annars lágstemmda yfir­lýsing kom fram. Tíu dagarnar þar á undan höfðu verið þeir verstu á mörkuðum frá því árið 2009, þegar flestir markaðir voru í frjálsu falli. Þá hefur verð­lækkun á olíu í byrjunar mánaðarins verið til marks um dvínandi eftir­spurn, en undan­farna daga hefur verið lítið eitt hækkað, eftir ríflega 17 prósent lækkun á þriggja vikna tímabili.

Atvinnu­leysi mælist ríflega tíu prósent að meðaltali í Evrópu­sambands­ríkjunum, mest í Suður-Evrópu en minna eftir því sem norðar dregur. Hræðslan hjá fjár­festum snýr öðru fremur að því að ekki sé að takast að skapa hagvöxt, og þar með ný störf í álfunni. Einn þeirra sem hefur miklar áhyggjur af þróun mála er Eric S. Rosengren, einn æðstu stjórn­enda bandaríska seðla­bankans. Hann viðraði áhyggjur sínar opinber­lega á dögunum. Hans áhyggjur felast öðru fremur í því að fyrirtæki í Evrópu séu ekki að vaxa nóg, eftir­spurn sé ekki nægilega mikil. Þegar kemur að ríflega 500 milljóna íbúasvæði þá getur þetta verið risavaxið vandamál fyrir heims­búskapinn.

Verðbólgu­mælingar fyrir evru­svæðið hafa verið í takt við spár, en þær nýjustu sýna minnstu verðbólgu á evrsvæðinu sem mælst hefur frá því í janúar 2009, 0,3 prósent. Þetta veldur að einhverju leyti áhyggjum, því verð­hjöðnun er skammt undan, það er neikvæð verðþróun. Samkvæmt upplýsingum sem hagstofa Evrópu, Eurostat, birti 17. október síðastliðinn, þá minnkaði fram­leiðsla iðnfyrirtækja um 1,4 prósent milli ára.

Stöðugur lítill hagvöxtur á evru­svæðinu, lítil fjölgun starfa og dvínandi eftir­spurn eru helstu áhyggju­efnin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár