Undirbúningur viðbragða vegna loftslagsvár á Íslandi hafinn

Mannslíf geta verið í hættu á Íslandi vegna skriðu­falla, tíðari gróður- og skógar­elda af völdum loftslags­breytinga. Þá getur smit­sjúkdóma­hætta aukist við hlýnandi veðurfar. Sigurður Loftur Thorlacius umhverfis­verk­fræðingur segir lítið sem ekkert hafa verið rætt um viðbrögð við loftslagsvá á Íslandi fyrr en nýlega. Vinna við stórt áhættu­greiningar­verkefni er hafið hjá Almanna­vörnum.

Síðustu ár og áratugi hefur umræða um loftslags­breytingar aðallega snúist um hvernig hægt sé að draga úr losun gróðurhúsa­lofttegunda sem valda hlýnun jarðar. Og þótt hlýnunin sé þegar farin að hafa áhrif á veðurfar og vistkerfi um allan heim hefur minna verið talað um hvernig bregðast skuli við þegar hlýnun eykst þrátt fyrir að vísinda­fólk segi að hún eigi eftir að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir líf á jörðinni. Allra síðustu ár hafa stjórn­völd víða um heim þó í auknum mæli farið að búa sig sig undir þá vá sem samfélög heimsins standa frammi fyrir vegna loftslags­breytinga.
Í september í fyrra var birt stefna íslenskra stjórn­valda um aðlögun samfélagsins að loftslags­breytingum. 

Af því tilefni sagði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, þáverandi umhverfis­ráðherra, að heildstæð nálgun á loftslags­málum feli hvort tveggja í sér að grípa til mótvægis­aðgerða til að draga úr losun og auka bindingu, og aðgerða til þess „að aðlaga samfélagið að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár